Bifogade filer
Kurs & Likviditet
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Stockholm |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 27. október 2021 um framkvæmd endurkaupaáætlunar. Í 49. viku 2021 keypti Arion banki eigin hluti á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. og sænsk heimildarskírteini (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.
Endurkaup á hlutum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í umrædd skipti voru eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Hlutir í eigu Arion eftir viðskipti |
07.12.2021 | 10:08:06 | 1.000.000 | 187,00 | 187.000.000 | 132.634.987 |
08.12.2021 | 11:34:16 | 400 | 185,00 | 74.000 | 132.635.387 |
08.12.2021 | 15:10:46 | 99.600 | 185,00 | 18.426.000 | 132.734.987 |
09.12.2021 | 10:57:42 | 250.000 | 185,50 | 46.375.000 | 132.984.987 |
10.12.2021 | 09:37:13 | 300.000 | 185,00 | 55.500.000 | 133.284.987 |
10.12.2021 | 15:21:25 | 500.000 | 185,00 | 92.500.000 | 133.784.987 |
2.150.000 | 399.875.000 | 133.784.987 |
Endurkaup á heimildarskírteinum á Nasdaq í Stokkhólmi voru eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keypt SDR | Viðskiptaverð | Kaupverð (SEK) | SDR í eigu Arion eftir viðskipti |
10.12.2021 | 10:31:52 | 10 | 12,82 | 128 | 1.197.627 |
10.12.2021 | 10:42:22 | 40 | 12,82 | 513 | 1.197.667 |
10.12.2021 | 10:45:34 | 77 | 12,82 | 987 | 1.197.744 |
10.12.2021 | 10:47:05 | 1.500 | 12,82 | 19.230 | 1.199.244 |
10.12.2021 | 10:59:25 | 11 | 12,82 | 141 | 1.199.255 |
10.12.2021 | 15:10:17 | 2.000 | 12,82 | 25.640 | 1.201.255 |
10.12.2021 | 15:42:28 | 380 | 12,82 | 4.872 | 1.201.635 |
10.12.2021 | 15:45:02 | 1.000 | 12,82 | 12.820 | 1.202.635 |
10.12.2021 | 15:46:57 | 77 | 12,82 | 987 | 1.202.712 |
10.12.2021 | 16:04:40 | 10.350 | 12,82 | 132.687 | 1.213.062 |
10.12.2021 | 16:10:40 | 1.067 | 12,82 | 13.679 | 1.214.129 |
10.12.2021 | 16:24:54 | 115 | 12,82 | 1.474 | 1.214.244 |
16.627 | 213.158 | 1.214.244 |
Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 49 samtals 132.832.604 eigin hluti og heimildarskírteini og á bankinn í lok viku 49 samtals 134.999.231 eigin hluti og heimildarskírteini. Samtals á bankinn nú sem nemur 8,13% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að endurkaupaáætlun hófst hefur bankinn keypt samtals 23.279.412 hluti og 210.189 heimildarskírteini.
Samkvæmt endurkaupaáætlun bankans verða að hámarki keyptir 27.245.185 hluti/SDR, sem samsvarar 1,64% af útgefnum hlutum í bankanum. Heimilt er að kaupa allt að 544.904 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,03% af útgefnum hlutum og allt að 26.700.281 hluti á Íslandi, sem samsvarar 1,61% af útgefnum hlutum. Fjárhæð endurkaupanna skal ekki vera meiri en sem svarar til 100.000.000 kr. í Svíþjóð og 4.900.000.000 kr. á Íslandi (samtals 5 milljarðar króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar framangreindu er náð eða í síðasta lagi 16. mars 2022. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á tímabilinu.
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, þ.á.m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.