Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 25. júlí 2024 um framkvæmd endurkaupaáætlunar og 30. ágúst um stækkun endurkaupaáætlunar. Í 38. og 39. viku 2024 keypti Arion banki eigin hluti á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. og sænsk heimildarskírteini (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi. Endurkaupum er nú lokið á báðum mörkuðum. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.
Endurkaup á hlutum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í umrædd skipti voru eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Hlutir í eigu Arion |
16.9.2024 | 09:49:14 | 25.051 | 135 | 3.381.885 | 96.505.622 |
17.9.2024 | 10:42:24 | 500.000 | 136,5 | 68.250.000 | 97.005.622 |
17.9.2024 | 15:20:58 | 100.000 | 135,5 | 13.550.000 | 97.105.622 |
17.9.2024 | 15:20:58 | 100.000 | 135 | 13.500.000 | 97.205.622 |
18.9.2024 | 09:35:11 | 463 | 133,5 | 61.811 | 97.206.085 |
23.9.2024 | 11:08:18 | 185.000 | 140,5 | 25.992.500 | 97.391.085 |
23.9.2024 | 11:32:56 | 171.000 | 140,5 | 24.025.500 | 97.562.085 |
1.081.514 | 148.761.696 | 97.562.085 |
Endurkaup á heimildarskírteinum á Nasdaq í Stokkhólmi voru eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keypt SDR | Viðskiptaverð | Kaupverð (SEK) | SDR í eigu Arion |
16.9.2024 | 15:22:15 | 35 | 10,15 | 355 | 3.096.127 |
17.9.2024 | 15:16:23 | 330 | 10,15 | 3.350 | 3.096.457 |
17.9.2024 | 15:20:46 | 4.670 | 10,15 | 47.401 | 3.101.127 |
18.9.2024 | 10:17:59 | 374 | 10,1 | 3.777 | 3.101.501 |
18.9.2024 | 11:00:51 | 250 | 10,1 | 2.525 | 3.101.751 |
18.9.2024 | 14:08:27 | 48 | 10,1 | 485 | 3.101.799 |
18.9.2024 | 14:37:02 | 26 | 10,1 | 263 | 3.101.825 |
18.9.2024 | 15:11:27 | 50 | 10,1 | 505 | 3.101.875 |
18.9.2024 | 15:22:27 | 94 | 10,1 | 949 | 3.101.969 |
18.9.2024 | 15:24:42 | 27 | 10,1 | 273 | 3.101.996 |
20.9.2024 | 11:01:46 | 13 | 10,25 | 133 | 3.102.009 |
5.917 | 60.015 | 3.102.009 |
Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 38 samtals 99.576.663 eigin hluti og heimildarskírteini og á bankinn í dag samtals 100.664.094 eigin hluti og heimildarskírteini. Samtals á bankinn nú sem nemur 6,651% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að endurkaupaáætlunin hófst hefur bankinn keypt samtals 28.041.514 hluti og 21.037 heimildarskírteini í tengslum við áætlunina.
Heimilt var að kaupa allt að 384.000 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,0254% af útgefnum hlutum og allt að 31.321.362 hluti á Íslandi, eða sem svara til 2,0696% af útgefnum hlutum bankans (samtals um 2,0949% af útgefnum hlutum). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 50.000.000 kr. í Svíþjóð og 3.888.816.794 kr. á Íslandi (samtals 3.938.816.794 króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar framangreindu er náð eða í síðasta lagi 12.mars 2025. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á tímabilinu.
Endurkaupaáætlunin voru framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 320/2022 um sama efni. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina eru birt opinberlega í samræmi við gildandi lög og reglur í Svíþjóð og á Íslandi, eins og við á.