Bifogade filer
Kurs & Likviditet
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Stockholm |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Aðalfundur Arion banka verður haldinn þann 16. mars 2022 klukkan 16:00.
Tilnefningarnefnd Arion banka gegnir ráðgefandi hlutverki vegna kjörs til stjórnar bankans og leggur fram rökstudda tillögu á þeim hluthafafundum þar sem kjör stjórnarmanna er á dagskrá, varðandi þá frambjóðendur sem tilnefningarnefndin telur best til þess fallna að taka sæti í stjórn bankans. Nánari upplýsingar um hlutverk tilnefningarnefndarinnar má finna í starfsreglum nefndarinnar, sem eru aðgengilegar hér.
Tilnefningarnefnd Arion banka óskar nú eftir framboðum til stjórnar Arion banka. Tímafrestur til þess að skila inn umsókn til tilnefningarnefndarinnar rennur út klukkan 16:00 þann 25. febrúar 2022, en tilnefningarnefndin mun ekki leggja mat á framboð sem berast eftir þann tíma. Fyrirhugað er að tilnefningarnefndin muni birta tillögu sína þann 2. mars 2022.
Frambjóðendur sem vilja skila inn framboði til tilnefningarnefndarinnar eru beðnir um að fylla út sérstakt eyðublað, sem er aðgengilegt hér, og senda til nefndarinnar á netfangið nominationcommittee@arionbanki.is.
Athugið að störf tilnefningarnefndarinnar og skilafrestur umsókna til hennar takmarka ekki rétt frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar bankans áður en almennur framboðsfrestur rennur út, sem er fimm (5) dögum fyrir aðalfund bankans, þ.e. klukkan 16:00 þann 11. mars 2022.