Bifogade filer
Kurs & Likviditet
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Small Cap Iceland |
Sektor | Tjänster |
Industri | IT-konsult & onlinetjänster |
Í viku 48 keypti Origo hf. (ORIGO) alls 202.198 eigin hluti fyrir kr. 17.211.830 eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu Origo eftir viðskipti |
28.11.2022 | 09:45:26 | 100.000 | 85,25 | 8.525.000 | 7.964.737 |
28.11.2022 | 10:43:46 | 102.198 | 85,00 | 8.686.830 | 8.066.935 |
Samtals | 202.198 | 17.211.830 |
Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Origo sem samþykkt var af stjórn þann 3. mars 2022, samanber tilkynningu til Kauphallar sama dag.
Origo hefur nú keypt samtals 4.000.000 hluti, sem samsvarar 100% af þeim eigin hlutum sem að hámarki skyldu keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nam samtals kr. 343.355.330. Eftir kaupin á Origo samtals 8.066.935 hluti eða 1,85% af heildarhlutafé félagsins sem er 435.000.000, en fyrir endurkaup eigin bréfa samkvæmt núverandi áætlun átti félagið 4.066.935 hluti að nafnverði í félaginu eða 0,93%.
Kaupum samkvæmt endurkaupaáætluninni er nú lokið þar sem hámarksfjölda keyptra hluta hefur verið náð.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 4.000.000 hlutir að nafnverði, en það jafngildir 0,92% af útgefnu hlutafé félagsins. Fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en kr. 350.000.000. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 1. mars 2023, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5.gr reglugerðar Evróuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvið nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdarstjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðsssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar
Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@origo.is.