Alvotech kynnir samning við Lotus Pharmaceutical um markaðssetningu á fyrirhuguðum hliðstæðum við durvalumab og emicizumab í Bandaríkjunum og á völdum mörkuðum í Asíu
Reykjavík (21. ágúst 2026) — Alvotech tilkynnti í dag að félagið hefði gert samstarfssamning við lyfjafyrirtækið Lotus Pharmaceutical um markaðssetningu í Bandaríkjunum og nokkrum Asíuríkjum á tveimur fyrirhuguðum hliðstæðum: AVT34, fyrirhugaðri hliðstæðu við Imfinzi (durvalumab) og AVT87, fyrirhugaðri hliðstæðu við Hemlibra (emicizumab).
Imfinzi er líftæknilyf til meðferðar við mörgum tegundum krabbameina. Tekjur af sölu á Imfinzi námu um 745 milljörðum króna á síðasta ári (6,1 milljarði dollara) 1. Hemlibra er notað til meðferðar á sjúklingum með dreyrasýki til að draga úr eða koma í veg fyrir blæðingar. Tekjur af sölu Hemlibra námu um 735 milljörðum króna á síðasta ári (4,8 milljörðum svissneskra franka) 2.
Samningurinn veitir báðum aðilum jafnan rétt til að markaðssetja hliðstæðurnar í Bandaríkjunum og hefur Alvotech rétt til að selja lyfin samhliða dótturfélagi Lotus, Alvogen. Alvotech þróar og framleiðir hliðstæðurnar og mun jafnframt verða markaðsleyfishafi í Bandaríkjunum.
Samkvæmt samningnum hefur Lotus einkarétt til að markaðssetja hliðstæðurnar á átta mörkuðum í Asíu: Suður-Kóreu, Taívan, Tælandi, Víetnam, Filippseyjum, Singapúr, Hong Kong og Malasíu. Lotus mun verða markaðsleyfishafi í Asíu.
Leyfistekjur Alvotech geta numið um 18 milljörðum króna (150 milljónum dollara), auk þess sem Alvotech mun framleiða lyfin fyrir alla markaði Lotus.
„Þessi samningur felur í sér mikilvægt skref í stefnu Alvotech í markaðsmálum,“ sagði Lisa Graver, forstjóri Alvotech. „Í fyrsta sinn munum við markaðssetja sjálf lyf þróuð af Alvotech í Bandaríkjunum. Bandaríkjamarkaður stendur undir um 60% af heildarsölu líftæknilyfja í heiminum og því til mikils að vinna að markaðssetja lyfin sjálf. Þessi samningur gerir okkur kleift að halda eftir stærri hluta af þeim verðmætum sem við erum að skapa með því að þróa og framleiða þessi lyf. Þá útvíkkar samstarfið við Lotus markaðssvæðið í Asíu fyrir þessar mikilvægu vörur sem við erum með í þróun. Við hlökkum til þess að vinna með Lotus að því að koma þessum hliðstæðum til sjúklinga og auka þar með aðgengi að hágæða líftæknilyfjum.“
„Það er okkur mikil ánægja að ganga til samstarfs við Alvotech um tvær mikilvægar fyrirhugaðar líftæknilyfjahliðstæður og stíga þannig mikilvægt skref í að viðhalda vexti Lotus,“ sagði Petar Vazharov, forstjóri Lotus. „Aðgangur að öflugri lyfjaþróun Alvotech og framúrskarandi framleiðsluaðstöðu er forsenda þess að geta markaðssett lyfin á þeim mörkuðum sem samningurinn nær til. Þessi lyf munu breikka framboð Lotus á líftæknilyfjahliðstæðum til meðferðar við krabbameini og sjaldgæfum sjúkdómum og undirstrikar það áhersluna sem við leggjum á að auka aðgengi að hágæða líftæknilyfjum.“
Imfinzi og Hemlibra eru skráð vörumerki viðkomandi frumlyfjaframleiðanda.
Nánari upplýsingar veitir
Benedikt Stefánsson, forstöðumaður fjárfestatengsla og samskipta
alvotech.ir@alvotech.com
Um Alvotech
Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech framleiðir og markaðssetur fimm líftæknilyfjahliðstæður, hliðstæðu við Humira (adalimumab), Stelara (ustekinumab), Eylea (aflibercept), Simponi (golimumab) og Prolia/Xgeva (denosumab). Þá vinnur félagið að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem m.a. geta nýst sjúklingum með krabbamein, sjálfsofnæmis-, augn- og blóðsjúkdóma. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.
Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu Alvotech. Fylgjast má með starfsemi Alvotech á LinkedIn, Facebook, Instagram og YouTube.
Notkun vörumerkja
Simponi og Simponi Aria eru skráð vörumerki Johnson & Johnson. Eylea er skráð vörumerki Regeneron Pharmaceuticals Inc. Entyvio® er skráð vörumerki Millennium Pharmaceuticals, Inc.
1 Ársreikningur (20-F) AztraZeneca PLC 2025, https://www.sec.gov/Archives/edgar/data/901832/000110465926019130/azn-20251231x20f.htm
2 Ársreikningur F. Hoffman-La Roche Ltd. 2025, https://assets.roche.com/f/176343/x/fca190f63e/fb25e.pdf