Onsdag 28 Oktober | 21:10:46 Europe / Stockholm
Est. tid*
2026-10-28 17:30 Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-07-29 - Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-05-06 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-03-12 - X-dag ordinarie utdelning ARION 11.50 ISK
2026-03-11 - Årsstämma
2026-02-11 - Bokslutskommuniké 2025
2025-10-29 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-07-30 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-05-07 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-03-13 - X-dag ordinarie utdelning ARION 11.50 ISK
2025-03-12 - Årsstämma
2025-02-12 - Bokslutskommuniké 2024
2024-10-30 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-07-25 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-04-30 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-14 - X-dag ordinarie utdelning ARION 9.00 ISK
2024-03-13 - Årsstämma
2024-02-07 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-26 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-26 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-04 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-16 - X-dag ordinarie utdelning ARION 8.50 ISK
2023-03-15 - Årsstämma
2023-02-08 - Bokslutskommuniké 2022
2022-10-26 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-07-27 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-04 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-17 - X-dag ordinarie utdelning ARION 15.00 ISK
2022-03-16 - Årsstämma
2022-02-09 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-27 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-28 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-05 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-17 - X-dag ordinarie utdelning ARION 1.74 ISK
2021-03-16 - Årsstämma
2021-02-10 - Bokslutskommuniké 2020
2020-10-28 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-07-29 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-05-15 - X-dag ordinarie utdelning ARION 0.00 ISK
2020-05-14 - Årsstämma
2020-05-06 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-02-12 - Bokslutskommuniké 2019
2019-10-30 - Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-09 - Årsstämma
2019-08-08 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-05-08 - Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-21 - X-dag ordinarie utdelning ARION 5.00 ISK
2019-02-13 - Bokslutskommuniké 2018
2018-10-31 - Kvartalsrapport 2018-Q3
2018-08-01 - Kvartalsrapport 2018-Q2
LandIsland
ListaLarge Cap Iceland
SektorFinans
IndustriBank
Arion Bank bedriver bankverksamhet. Banken erbjuder finansiella tjänster inriktade mot lån, sparande och pension. Olika tjänster inkluderart traditionell kapitalförvaltning, lånefinansiering, samt fakturerings – och valutatjänster. En stor del av tjänsterna nås via internetbanken, där kunderna återfinns både bland privat- och företagskunder på den isländska marknaden. Huvudkontoret ligger i Reykjavik.

Analysera bolaget i Börsdata!

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

2026-10-28 17:31:00

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lykiltölur á þriðja ársfjórðungi 2026

  • Hagnaður Arion banka* var 8,7 ma.kr. á fjórðungnum, samanborið við 8,2 ma.kr. á 3F 2025
  • Arðsemi eiginfjár* var 16,3%, samanborið við 16,0% á 3F 2025
  • Hagnaður á hlut var 6,42 krónur, samanborið við 5,95 krónur á 3F 2025
  • Vaxtamunur á vaxtaberandi eignir var 3,5%, samanborið við 3,3% á 3F 2025
  • Hreinar þjónustutekjur námu 3,8 mö.kr., samanborið við 4,0 ma.kr. á 3F 2025
  • Rekstur Varðar skilaði 0,4 ma.kr. hagnaði, samanborið við 0,7 ma.kr. hagnað á 3F 2025. Samsett hlutfall var 85,7% á 3F 2026 samanborið við 88,2% á sama fjórðungi 2025
  • Kjarnatekjur, þ.e. hreinar vaxta-, þjónustu- og tryggingatekjur (án rekstrarkostnaðar tryggingastarfseminnar), jukust um 10,6% í samanburði við 3F 2025
  • Rekstrarkostnaður jókst um 13,0%, sem samsvarar 809 m.kr., í samanburði við 3F 2025, að meðtöldum einskiptisliðum sem námu um 480 m.kr.
  • Virkt skatthlutfall var 26,6% á fjórðungnum
  • Heildarkostnaður sem hlutfall af kjarnatekjum var 37,1%, samanborið við 36,3% á 3F 2025
  • Kostnaðarhlutfall var 34,3%, í samanburði við 32,6% á 3F 2025
  • Efnahagsreikningur bankans stækkaði um 1,8% á fjórðungnum
  • Lán til viðskiptavina lækkuðu um 3 ma.kr. eða 0,2% á fjórðungnum, en innlán frá viðskiptavinum jukust um 33 ma.kr. eða 3,3%
  • Eiginfjárhlutfall bankans (CAR hlutfall) var 22,4% og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 var 18,5% í lok september. Hlutföllin taka tillit til óendurskoðaðs hagnaðar fjórðungsins að teknu tilliti til væntrar arðgreiðslu, sem nemur 50% af hagnaði í samræmi við arðgreiðslustefnu bankans. Eiginfjárhlutfall samkvæmt reglum Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands var 21,9% í lok september og hlutfall eiginfjárþáttar 1 18,1%. Eiginfjárhlutfall og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 eru vel umfram kröfur sem settar eru fram í lögum og af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.

Lykiltölur fyrir fyrstu 9 mánuði ársins 2026

  • Hagnaður Arion banka* var 24,1 ma.kr. fyrstu 9M 2026, samanborið við 24,4 ma.kr. fyrstu 9M 2025
  • Arðsemi eiginfjár* var 15,1%, samanborið við 16,0% fyrstu 9M 2025
  • Hagnaður á hlut var 17,79 krónur, samanborið við 17,55 krónur fyrstu 9M 2025
  • Hreinn vaxtamunur var 3,6%, samanborið við 3,3% fyrstu 9M 2025
  • Hreinar þjónustutekjur námu 11,6 mö.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins í samanburði við 13,1 ma.kr. fyrstu 9M 2025
  • Hagnaður Varðar nam 0,8 mö.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við 0,9 ma.kr. á sama tíma 2025. Samsett hlutfall nam 91,4% samanborið við 89,0% fyrstu 9M 2025
  • Kjarnatekjur jukust um 10,0% samanborið við fyrstu 9M 2025
  • Rekstrarkostnaður jókst um 12,3% eða 2,4 ma.kr. í samanburði við fyrstu 9M 2025, aðallega vegna hærri launa- og upplýsingatæknikostnaðar
  • Virkt skatthlutfall var 29,5%
  • Heildarkostnaður sem hlutfall af kjarnatekjum var 39,2%, samanborið við 38,3% fyrstu 9M 2025
  • Kostnaðarhlutfall var 36,6%, samanborið við 32,8% fyrstu 9M 2025
  • Efnahagsreikningur bankans hefur stækkað um 7,2% frá árslokum 2025, einkum vegna útlána til viðskiptavina og innlána
  • Arðgreiðsla og kaup eigin hlutabréfa námu samtals 25,6 ma.kr. fyrstu 9M 2026

Verði boðuð hækkun bankaskatts úr 0,145% í 0,254% samþykkt eykst kostnaður um u.þ.b. 1,7 ma.kr. á 4F 2026.

* Hagnaður / arðsemi eiginfjár sem tilheyrir hluthöfum Arion banka.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka
„Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi er góð og í samræmi við markmið. Kjarnastarfsemi okkar gengur vel og áfram er góður vöxtur í innlánum en dregið hefur úr vexti útlána sem endurspeglar viðvarandi hátt vaxtastig. Eigin- og lausafjárstaða Arion samstæðunnar er áfram góð og við erum nú sem fyrr í góðri stöðu til að styðja við viðskiptavini okkar í þeim verkefnum sem þeir takast á hendur. 

Sú samstaða sem náðist fyrr í þessum mánuði meðal stjórnvalda, sveitarfélaga og fjölmargra fyrirtækja í baráttunni gegn verðbólgu var mikilvæg og átti sinn þátt í að uppsagnarákvæði kjarasamninga var ekki virkjað. Forsendur eru nú til staðar fyrir lækkun verðbólgu og þar með lækkun stýrivaxta. Vissulega er margt í ytra umhverfi sem við höfum ekki stjórn á en með víðtækri samstöðu höfum við gert það sem í okkar valdi stendur til að stuðla að lækkun verðbólgu.  

Stjórnvöld áforma að hækka bankaskatt um rúmlega 75%. Skatturinn leggst á skuldir fjármálafyrirtækja sem eru að stærstum hluta innlán viðskiptavina. Við víkjum okkur auðvitað ekki undan því að greiða skatta til samfélagsins en fyrir eru skattar á íslensk fjármálafyrirtæki vel umfram það sem gerist í löndunum í kringum okkur auk þess sem hér eru í gildi margvíslegar séríslenskar lagakröfur sem hafa kostnað í för með sér. Ef við horfum bara til síðasta árs þá skilaði starfsemi Arion banka, að dótturfélögum undanskildum, samfélaginu um 15 milljörðum króna í skatttekjur.  

Í þessu sambandi er mikilvægt að huga að samkeppnishæfni Íslands. Þó hallalaus fjárlög séu vissulega mikilvægt markmið þá þarf að vera til staðar framtíðarsýn um starfsumhverfi fyrirtækja þegar kemur að fjármögnunarkostnaði og álögum – hvernig við viðhöldum hagsæld til framtíðar í alþjóðlegu samkeppnisumhverfi. Við áætlum að fyrirhuguð skattahækkun muni í tilfelli Arion banka nema um 1.700 milljónum á ári og miðað við áform ríkisstjórnarinnar þá mun hækkunin vera afturvirk og ná til yfirstandandi árs. Þetta er að okkar mati skammsýn ráðstöfun til að mæta tímabundnum aðstæðum en ef af verður þá er eðlilegt að hún falli niður eftir 1-2 ár.  

Stefnir hf., dótturfélag Arion banka hf., fagnar 30 ára starfsafmæli í ár. Frá stofnun árið 1996 hefur Stefnir vaxið í eitt farsælasta sjóðastýringarfélag landsins. Þar starfa nú tuttugu manns og eru rúmlega 390 milljarðar króna í virkri stýringu félagsins. Stefnir var fyrst íslenskra félaga til að hljóta viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum árið 2012 en á dögunum fengu einmitt öll fyrirtæki Arion samstæðunnar, Stefnir, Arion banki og Vörður, þá sömu viðurkenningu endurnýjaða. 

Nýverið bættum við erlendum vísitölusjóðum í Arion appið og netbankann sem koma til viðbótar við þegar fjölbreyttar sparnaðar- og fjárfestingarleiðir. Vísitölusjóðirnir eru fjórir og spanna vísitölur ólíkra markaðssvæða. Þannig hafa viðskiptavinir okkar nú greiðan aðgang að sjóðum sem starfa á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum og tækifæri til að dreifa áhættu í sparnaði með afar hagkvæmum og einföldum hætti.“

Fundur / vefstreymi fyrir markaðsaðila 29. október kl. 8:30
Fjárfestafundur fyrir markaðsaðila verður fimmtudaginn 29. október klukkan 8:30 í Borgartúni 19 þar sem Benedikt Gíslason bankastjóri og Ólafur Hrafn Höskuldsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs munu kynna afkomu bankans og Erna Björg Sverrisdóttir aðalhagfræðingur fer yfir stöðu efnahagslífsins. Fundurinn fer fram á ensku og verður einnig streymt beint.

Hægt verður að nálgast streymið á Lumiconnect og á fjárfestatengslavef bankans. Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur í gegnum spjallþráð á sömu síðu. Spurningum verður svarað að loknum kynningum. 

Fjárhagsdagatal
Fjárhagsdagatal Arion banka er aðgengilegt á heimasíðu bankans.