Arion banki: Lækkun hlutafjár
2025-04-03 20:10:00
Aðalfundur Arion banka hf. sem fór fram þann 12. mars 2025 samþykkti að lækka hlutafé félagsins um 93.423.078 kr. að nafnverði, sem nemur 93.423.078 hlutum, til jöfnunar á eigin hlutum félagsins.
Beiðni hefur verið send á Nasdaq og mun lækkunin verða framkvæmd 7. apríl 2025. Hlutafé félagsins lækkar því úr 1.513.423.078 kr. í 1.420.000.000 kr. að nafnverði sem skiptist í jafnmarga hluti og fylgir hverjum hlut eitt atkvæði. Eftir lækkunina á Arion banki samtals 18.815.916 eigin hluti og heimildarskírteini.