Arion banki: Niðurstöður könnunar- og matsferlis fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (SREP)
Viðbótareiginfjárkrafa Arion banka undir stoð II (e. Pillar II) er 2,0% frá og með 30. júní 2026 sem er hækkun sem nemur 0,1 prósentustigi frá fyrra ári.
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands leggur mat á áhættuþætti í starfsemi fjármálafyrirtækja í könnunar- og matsferli (e. Supervisory Review and Evaluation Process, SREP) og með hvaða hætti fjármálafyrirtæki meðhöndlar þá í starfseminni, sbr. lög nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Hjá þeim fjármálafyrirtækjum sem metin eru kerfislega mikilvæg fer slíkt mat fram árlega.
Niðurstaða SREP ferlisins er að Arion banki hf. skuli frá og með 30. júní 2026 viðhalda viðbótarkröfu um eiginfjárgrunn sem nemur 2,0% af áhættugrunni, sem er hækkun sem nemur 0,1 prósentustigi frá fyrra ári.
Heildareiginfjárkrafa Arion banka, að teknu tilliti til samanlagðrar kröfu um eiginfjárauka er 19,7%, sem er óbreytt frá fyrra ári.