Arion banki: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 22. maí 2026 um framkvæmd endurkaupaáætlunar. Í 32. viku 2026 keypti Arion banki eigin hluti á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. og sænsk heimildarskírteini (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.
Endurkaup á hlutum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í umrædd skipti voru eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu Arion |
| 5.8.2026 | 09:48:11 | 100.000 | 193,50 | 19.350.000 | 32.110.467 |
| 5.8.2026 | 11:01:21 | 200.000 | 194,00 | 38.800.000 | 32.310.467 |
| 5.8.2026 | 11:24:28 | 150.000 | 194,00 | 29.100.000 | 32.460.467 |
| 5.8.2026 | 13:00:23 | 100.000 | 193,25 | 19.325.000 | 32.560.467 |
| 6.8.2026 | 11:57:39 | 200.000 | 192,50 | 38.500.000 | 32.760.467 |
| 6.8.2026 | 14:08:09 | 200.000 | 192,50 | 38.500.000 | 32.960.467 |
| 6.8.2026 | 14:14:01 | 150.000 | 192,50 | 28.875.000 | 33.110.467 |
| 7.8.2026 | 10:34:10 | 200.000 | 191,75 | 38.350.000 | 33.310.467 |
| 7.8.2026 | 11:14:19 | 100.000 | 193,00 | 19.300.000 | 33.410.467 |
| 7.8.2026 | 14:49:33 | 200.000 | 193,50 | 38.700.000 | 33.610.467 |
| 1.600.000 | 308.800.000 | 33.610.467 |
Endurkaup á heimildarskírteinum á Nasdaq í Stokkhólmi voru eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keypt SDR | Viðskiptaverð | Kaupverð (SEK) | SDR í eigu Arion |
| 4.8.2026 | 10:06:38 | 299 | 14,68 | 4.389 | 3.764.677 |
| 4.8.2026 | 10:13:29 | 11 | 14,68 | 161 | 3.764.688 |
| 4.8.2026 | 10:12:01 | 11 | 14,68 | 161 | 3.764.699 |
| 6.8.2026 | 09:13:10 | 11 | 14,86 | 163 | 3.764.710 |
| 6.8.2026 | 09:24:19 | 12 | 14,86 | 178 | 3.764.722 |
| 6.8.2026 | 10:13:57 | 1.977 | 14,86 | 29.378 | 3.766.699 |
| 2.321 | 34.432 | 3.766.699 |
Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 32 samtals 35.774.845 eigin hluti og heimildarskírteini og á bankinn í lok viku 32 samtals 37.377.166 eigin hluti og heimildarskírteini. Samtals á bankinn nú sem nemur 2,71% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að endurkaupaáætlun hófst hefur bankinn keypt samtals 23.100.218 hluti fyrir 4.444.634.324 kr. og 81.419 heimildarskírteini fyrir 1.187.360 sænskar krónur.
Heimilt er að kaupa allt að 532.000 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,04% af útgefnum hlutum og allt að 26.068.000 hluti á Íslandi, eða sem svara til 1,89% af útgefnum hlutum bankans (samtals um 1,93% af útgefnum hlutum). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 100.000.000 kr. í Svíþjóð og 4.900.000.000 kr. á Íslandi (samtals 5,0 milljarðar króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar framangreindu er náð eða í síðasta lagi 31. desember 2026. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á tímabilinu.
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 1290/2025 um sama efni.