Arion banki: Samkomulag um kaup Rapyd á Valitor framlengt til 1. júlí 2022
2022-06-10 20:00:00
Eins og upplýst hefur verið um þá liggur samþykki Samkeppniseftirlitsins á samkomulagi Arion banka og Rapyd um kaup Rapyd á Valitor fyrir en fyrirvarar samkomulagsins eru þó enn ekki að fullu uppfylltir þar sem beðið er formlegs samþykkis Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Samkomulag Arion banka og Rapyd sem framlengt hafði verið til 10. júní 2022 hefur því verið framlengt til 1. júlí nk.