Markaðsdagur Arion banka 17. nóvember
2021-11-10 17:45:00
Arion banki mun halda markaðsdag bankans 2021 miðvikudaginn 17. nóvember næstkomandi í höfuðstöðvum bankans, Borgartúni 19, frá kl. 8.30 til 11.30. Þar mun Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, ásamt aðilum úr framkvæmdastjórn fara yfir helstu áherslur í stefnu og starfsemi bankans. Einnig mun aðalhagfræðingur bankans, Erna Björg Sverrisdóttir, fara yfir stöðu efnahagsmála. Fundurinn fer fram á ensku.
Fundinum verður jafnframt streymt beint og upptaka aðgengileg að honum loknum á vefsíðu Arion banka.
Skráning fer fram hér
Sjá dagskrá í viðhengi