Torsdag 29 Oktober | 02:19:39 Europe / Stockholm
Est. tid*
2027-03-11 N/A Årsstämma
2027-02-16 N/A Bokslutskommuniké 2026
2026-10-27 - Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-08-18 - Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-04-28 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-03-13 - X-dag ordinarie utdelning ASAR 0.21 ISK
2026-03-12 - Årsstämma
2026-02-16 - Bokslutskommuniké 2025
2025-10-28 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-08-19 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-04-29 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-03-14 - X-dag ordinarie utdelning ASAR 0.20 ISK
2025-03-13 - Årsstämma
2025-02-18 - Bokslutskommuniké 2024
2024-10-22 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-08-27 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-04-23 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-15 - X-dag ordinarie utdelning ASAR 0.20 ISK
2024-03-14 - Årsstämma
2024-02-20 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-31 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-22 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-04-25 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-02-14 - Bokslutskommuniké 2022
2022-10-25 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-08-23 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-04-26 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-10 - Årsstämma
2022-02-15 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-26 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-08-31 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-04-27 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-12 - X-dag ordinarie utdelning ASAR 0.00 ISK
2021-03-11 - Årsstämma
2021-02-18 - Bokslutskommuniké 2020
2020-10-27 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-08-25 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-04-28 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-03-13 - X-dag ordinarie utdelning ASAR 0.00 ISK
2020-03-12 - Årsstämma
2020-02-25 - Bokslutskommuniké 2019
2019-10-29 - Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-27 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-04-30 - Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-22 - X-dag ordinarie utdelning ASAR 0.00 ISK
2019-03-21 - Årsstämma
2019-02-26 - Bokslutskommuniké 2018
2016-03-11 - X-dag ordinarie utdelning ASAR 0.06 ISK
LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorTelekom & Media
IndustriTelekommunikation och -tjänster
Ásar är ett telekombolag. Bolaget levererar mobila tjänster, abonnemang, fast- och mobilt bredband, IP-lösningar, samt tillhörande tjänster. Utöver huvudverksamheten erbjuds även olika smartlösningar, inkluderat betalningslösningar samt digitala lösningar för bilkörande. En stor del av bolagets tjänster nås digitalt och kunderna återfinns både bland privat – och företagskunder, med störst verksamhet på den isländska marknaden. Bolaget gick tidigare under namnet Síminn.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Ásar hf. - Afkoma þriðja ársfjórðungs 2026

2026-10-27 16:43:31

Helstu niðurstöður úr rekstri á 3F 2026

  • Tekjur á þriðja ársfjórðungi (3F) 2026 námu 7.846 m.kr. samanborið við 7.062 m.kr. á sama tímabili 2025 og hækkuðu um 11,1%. Tekjur af fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu jukust um 3,6%, tekjur af auglýsingamiðlun um 7,2% og vörusala jókst um 17%. Aðrar tekjur námu 1.039 m.kr. og jukust um 483 m.kr. frá fyrra ári eða um 86,9%. Mikil hækkun annarra tekna er vegna Greiðslumiðlunar Íslands ehf. (GMÍ, 487 m.kr.) sem varð hluti af samstæðu Ása þann 1. júlí 2026.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 1.939 m.kr. á 3F 2026 og hækkaði um 91 m.kr. eða 4,9% frá sama tímabili 2025.
  • Aðlagað EBITDA nam 2.116 m.kr. á 3F 2026 og hækkaði um 268 m.kr. eða 14,5% frá sama tímabili 2025. Aðlagað EBITDA hlutfall er 27,0% á 3F 2026 en var 26,2% á sama tímabili 2025. Aðlagaður rekstrarhagnaður (EBIT) nam 1.099 m.kr. á 3F 2026 samanborið við 1.052 m.kr. á sama tímabili 2025. Áhrif GMÍ á EBITDA samstæðunnar á 3F er 124 m.kr. til hækkunar og EBIT 54 m.kr. til hækkunar. Aðlögun EBITDA og EBIT á 3F 2026 nam samtals 177 m.kr. og er tilkomin vegna beins kostnaðar sem féll til við breytingu á skipulagi samstæðunnar (65 m.kr.) og vegna ytri vaxtar (GMÍ 72 m.kr. og undirbúningur mögulegra kaupa á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar 40 m.kr.). EBIT er einnig aðlagað fyrir afskriftum á óefnislegum eignum vegna ytri vaxtar (3F 2026: 35 m.kr., 3F 2025: 27 m.kr.).
  • Hrein fjármagnsgjöld námu 380 m.kr. á 3F 2026 en námu 245 m.kr. á sama tímabili 2025. Fjármagnsgjöld námu 731 m.kr., fjármunatekjur 293 m.kr. og gengishagnaður 58 m.kr.
  • Hagnaður á 3F 2026 nam 403 m.kr. samanborið við 622 m.kr. á sama tímabili 2025. Hagnaður á hlut nam 0,17 kr. á fjórðungnum.
  • Vaxtaberandi skuldir samstæðu að leiguskuldbindingum meðtöldum námu 25.183 m.kr. í lok 3F 2026, en voru 19.497 m.kr. í árslok 2025. Handbært fé í lok 3F 2026 nam 2.297 m.kr., en var 980 m.kr. í árslok 2025. Bókfært virði útlánasafns samstæðunnar var 5.634 m.kr. í lok 3F 2026 en stækkun lánasafns má einkum rekja til lánasafns GMÍ að fjárhæð 1.373 m.kr. Hreinar vaxtaberandi skuldir / 12M EBITDA1 í lok 3F 2026 var 2,3x.
  • Eiginfjárhlutfall Ása var 33,8% í lok 3F 2026 og eigið fé 16,9 ma.kr.

1 12M EBITDA er aðlagað fyrir 77 m.kr. gjaldfærslu vegna dómsmála á 1F 2026, 177 m.kr. beinum kostnaði vegna ytri vaxtar og breytinga á skipulagi samstæðunnar á 3F 2026 ásamt áhrifum GMÍ á EBITDA miðað við 12 mánaða tímabil.

María Björk Einarsdóttir, forstjóri:

„Í dag birtum við fyrsta uppgjörið undir merkjum Ása, en fjórðungurinn er sá fyrsti með Greiðslumiðlun Íslands innanborðs. Samstæðan tekur nú óðum á sig mynd og stöðugleiki í rekstrinum treystir grunninn fyrir áframhaldandi vöxt.

Tekjur fara vaxandi og afkoman sömuleiðis, aðlöguð fyrir beinum kostnaði vegna ytri vaxtar og breytinga á skipulagi samstæðunnar. Árangurinn er ekki eingöngu drifinn af nýjum félögum, en án áhrifa af kaupum á Greiðslumiðlun Íslands jukust tekjur um rúm 4% og aðlöguð EBITDA um tæp 8%.

Vöxturinn er þvert á starfsþætti. Í fjarskiptum fjölgar farsímaáskriftum, uppbygging 5G heldur áfram og sókn í varatengingum treystir rekstur íslenskra fyrirtækja og stofnana. Innleiðing gervigreindar í rekstrinum eykur afköst og gæði þjónustu við viðskiptavini.

Fjártækni vex sífellt ásmegin, en lánasafnið hefur stækkað um 24% frá áramótum og velta fyrirtækjakorta aukist um 53% milli ára. Notendafjöldi Noona heldur áfram að vaxa og með Noona Strax bjóðum við vandaða heildarlausn fyrir fyrirtæki sem eru að hefja rekstur.

Miðlar eru í stöðugri sókn og Premium er besta innlenda streymisveitan svo miklu munar samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Þá hafa 60 nýir Billboard skjáir bæst við á árinu og tíu ára framlenging samnings við Hafnarfjarðarbæ um rekstur biðskýla bætir upplifun farþega, einfaldar rekstur bæjarins og styrkir net umhverfismiðlanna.

Þrátt fyrir krefjandi ytri aðstæður gerir markviss hagræðing okkur kleift að halda áfram að fjárfesta í vexti og betri þjónustu. Þar skiptir sköpum framúrskarandi starfsfólk, sem hefur sýnt einstaka aðlögunarhæfni á tímum mikilla breytinga.

Niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins vegna kaupa á Öryggismiðstöð Íslands og Opnum kerfum er að vænta á næstu dögum. Með viðskiptunum er stefnt að því að stækka og efla samstæðuna enn frekar og nýta sameiginlega stoðþjónustu til að ná fram aukinni hagræðingu. Gangi viðskiptin eftir er þannig stefnt að 600 til 800 m.kr. árlegri kostnaðarsamlegð sem raungerist á komandi árum.

Því fylgir svigrúm til að bæta þjónustu enn frekar, sporna gegn kostnaðarþrýstingi og bjóða stöðugt samkeppnishæfari kjör til viðskiptavina.“

Kynningarfundur 28. október 2026

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 28. október 2026 kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Hluthafar, fjárfestar og markaðsaðilar eru sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn. Á fundinum munu María Björk Einarsdóttir forstjóri og Hjörtur Þór Steindórsson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast í fréttakerfi Nasdaq Iceland og á vef Ása.

Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í beinu streymi á www.asar.is/fjarfestar/fjarfestakynning.

Þeir sem vilja bera upp spurningar geta sent þær á fjarfestatengsl@asar.is og verður þeim svarað í lok fundarins.

Nánari upplýsingar um uppgjörið veita:

María Björk Einarsdóttir, forstjóri Ása (maria@asar.is)

Hjörtur Þór Steindórsson, fjármálastjóri Ása (hjortur.steindorsson@asar.is)