Torsdag 25 Juni | 21:11:52 Europe / Stockholm
Est. tid*
2026-04-29 - X-dag ordinarie utdelning OLGERD 0.00 ISK
2023-04-18 - Bokslutskommuniké 2022
2023-01-12 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-10-11 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-06-30 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-05-19 - Årsstämma
LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorHandel & varor
IndustriDagligvaror
Bera är ett isländskt bryggeri och dryckesbolag. Bolaget producerar, importerar, distribuerar och säljer drycker och livsmedel över hela Island. Utbudet är brett och inkluderar bland annat vin, öl, sprit och alkoholfritt. Produkterna återsäljs även runtom den internationella marknaden. Bolaget grundades år 1913 och har sitt huvudkontor i Reykjavik.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Bera hf.: Afkomutilkynning fyrir 1. mars 2026 til 31. maí 2026

2026-06-25 18:33:36

Helstu niðurstöður stjórnendauppgjörs fyrir Q1 2026 eru:

  • Vörusala samstæðunnar jókst um 14,9% miðað við sama tímabil á síðasta ári.
  • EBITDA ársfjórðungsins var 1.225 millj. kr. samanborið við 970 millj. kr. árið áður.
  • Hagnaður eftir skatta var 398 millj. kr. samanborið við 379 millj. kr. árið áður.
  • EBITDA spá félagsins fyrir fjárhagsárið stendur óbreytt í 6.100 – 6.500 millj. kr.
  • Gæðabakstur og Kjarnavörur bættust við samstæðuna þann 1. desember 2025.

Rekstur Q1 2026 (millj. kr.)

Rekstrarreikningur Q1 2026Q1 2026Q1 2025Breyt.% Breyt
Vörusala13.34211.6091.73315%
Áfengis- og skilagjald3.0133.021-80%
Vörunotkun5.0024.36963314%
Annar framleiðslukostnaður2962395724%
Framlegð5.0313.9801.05126%
Aðrar tekjur16511201%
Laun og launatengd gjöld2.2081.47373550%
Sölu- og markaðskostnaður839898-59-7%
Annar kostnaður77564413120%
EBITDA1.22597025526%
Afskriftir3863008628%
EBIT83967016925%
Fjármagnsliðir og áhrif hlutdeildarfélaga34619814875%
Hagnaður fyrir skatta493472214%
Tekjuskattur969333%
Aflögð starfsemi2 2 
Hagnaður e skatta398379195%


Innkoma nýrra dótturfélaga Beru, Gæðabaksturs og Kjarnavara, höfðu jákvæð áhrif á rekstur samstæðunnar á síðasta ársfjórðungi en samanlögð EBITDA þeirra var 285 millj. kr. á ársfjórðungnum. Áhrifin má m.a. sjá í breyttu launahlutfalli þar sem framleiðsla félaganna dregur með sér hlutfallslega hærri launakostnað en í Ölgerðinni og Danól. Fjármagnskostnaður hækkar jafnframt þar sem kaupin á félögunum voru fjármögnuð með lántöku á síðasta ári. Á móti er hlutfall rekstrarkostnaðar lægra. Með innkomu félaganna í samstæðu Beru breikkar tekjugrunn félagsins bæði hvað varðar vöruframboð og viðskiptavini. Sem dæmi þá minnkar hlutfallslegt vægi sölu til hótela og veitingastaða frá því sem var.

Krefjandi ytra umhverfi hafði áhrif á sölu Ölgerðarinnar og Danól á ársfjórðungnum. Sala Ölgerðarinnar og Danól jókst samtals um 1,2% frá sama tímabili í fyrra sem var undir væntingum og skýrist aðallega af minni sölu til hótela og veitingastaða. Salan hefur hins vegar aftur tekið við sér á öðrum ársfjórðungi. Áhersla félagsins á öfluga vöruþróun heldur áfram að skila sér í sterkum nýjungum á markað. Má þar nefna próteindrykkinn UPP sem Ölgerðin þróaði í samvinnu við World Class ásamt Tuborg Lite, sem Ölgerðin þróaði á Íslandi í samstarfi við Carlsberg Group í Danmörku.

Undanfarna mánuði hefur verið unnið að færslu á vöruhýsingar- og dreifingarþjónustu fyrir Danól í eigið vöruhús að Köllunarklettsvegi 6. Með því er hægt að auka þjónustustig við viðskiptavini Danól en áður var þessi þjónusta keypt af þriðja aðila. Breytingin hækkar launakostnað samstæðunnar en á móti mun aðkeypt þjónusta lækka þegar áhrifin eru að fullu komin fram sem verður á öðrum ársfjórðungi.

Viðsnúningur varð í rekstri útflutningshluta samstæðunnar, sem felst í Iceland Spring og Collab útflutningi. EBITDA ársfjórðungsins var jákvæð um samtals 52 millj. kr. sem er 114 millj. kr. bati frá sama tímabili í fyrra. Jákvæður viðsnúningur í afkomu Iceland Spring kemur einnig fram á kostnaðarhliðinni þar sem bæði launa- og rekstrarkostnaður dregst saman milli ára. EBITDA áhrif af útflutningi á Collab á ársfjórðungnum eru í takt við áætlanir. Áfram er kostnaður sem fellur til vegna sölu- og markaðssetningar á Collab erlendis gjaldfærður að fullu um leið og hann fellur til. Áhrif Collab útflutnings á EBITDA samstæðunnar voru neikvæð um 45 millj. kr. á ársfjórðungnum samanborið við 120 millj. kr. neikvæð áhrif á fyrra ári (sjá mynd í viðhengdri fréttatilkynningu).

Efnahagur 31.05.2026 (millj. kr.)

Efnahagur31/5/20262/28/2025Breyt.% Breyt
Eignir44.36944.1721970%
Eigið fé18.86418.4174472%
Eiginfjárhlutfall42,5%41,7%0,8% 
     
Vaxtaberandi skuldir og leigusk.14.81315.631-817-5%
Handbært fé6422.504-1.862-74%
Nettó vaxtaberandi skuldir og leigusk.14.17113.1271.0448%
EBITDA sl. 12 mán5.2625.0072555%
NIBD/EBITDA sl. 12 mán2,692,620,07 


Nettó vaxtaberandi skuldir, að viðbættri húsaleiguskuldbindingu, voru 14.171 millj. kr. í lok ársfjórðungsins sem er hækkun um 1.044 millj. kr.  Hlutfall nettó vaxtaberandi skulda og EBITDA var 2,69 í lok tímabilsins. Skuldahlutfallið mun að öðru óbreyttu lækka þegar EBITDA áhrifa Gæðabaksturs og Kjarnavara gætir á heilu fjárhagsári.
Bera hélt áfram útgáfu markaðsvíxla og voru viðtökur markaðarins áfram mjög jákvæðar. Í júní gaf félagið svo út 2 ma. kr. skráð skuldabréf til tveggja ára á 110 bp. álagi á REIBOR vexti.  Andvirði útgáfunnar verður notað til niðurgreiðslu bankafjármögnunar á óhagstæðari kjörum.

Meðalvextir skulda samstæðunnar í íslenskum krónum voru 9,6% í lok tímabilsins.

Fjárfestingar

Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum námu 635 millj. kr. á ársfjórðungnum. Helstu fjárfestingar á tímabilinu voru endurnýjun á framleiðslulínu fyrir safa og framkvæmdir við mælistöð fyrir frárennsli á lóð félagsins á Grjóthálsi.
Útgefin fjárfestingaáætlun ársins er 4.550 millj. kr. og þar vegur þyngst fyrirhuguð endurnýjun á framleiðslusal fyrir dósir og gler sem áætlað er að taka í notkun á fyrri hluta næsta árs.

Aðrar fréttir af starfseminni:

Kjarnavörur keyptu þann 8. maí 2026 alla útistandandi hluti í Innbak og á nú félagið að fullu, en fyrir áttu Kjarnavörur 68% hlut. Kaupverðið var 89 millj. kr. og greitt í reiðufé.  
Kjarnavörur seldu þann 8. júní 2026 allt hlutafé í Ísbúð Vesturbæjar ehf. til móðurfélags Tröll Ferðaþjónustu. Heildarvirði Ísbúðarinnar í viðskiptunum var 215 millj. kr. Kaupin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Jón Þorsteinn Oddleifsson, forstjóri:
„Fyrsti ársfjórðungur Beru hf. í núverandi mynd er að baki. Eins og sjá má af uppgjörinu þá koma Gæðabakstur og Kjarnavörur sterk inn í samstæðuna og undirstrikar það mikilvægi þess að hafa margar traustar stoðir undir rekstrinum. Ánægjulegt var að sjá jákvæðan viðsnúning hjá Iceland Spring eftir krefjandi síðasta ár. Rekstrarumhverfi félagsins í heild innanlands var hins vegar erfiðara en á sama tímabili í fyrra. Sérstaklega var mikill munur á sölu í maímánuði á milli ára. Háir vextir, veðurfar og hækkanir á hrávörumörkuðum vógu þar þyngst. Sterk eftirspurn í nýlegu skuldabréfaútboði Beru er jákvætt merki og endurspeglar trú fjárfesta á þeirri vegferð sem félagið er á. Yfirstandandi ársfjórðungur fer vel af stað og við erum bjartsýn á rekstrarhorfur sumarsins.“ 

Nánari upplýsingar veita:
Jón Þorsteinn Oddleifsson, forstjóri, í síma 820-6491
Óskar Ingi Magnússon, fjármálastjóri, í síma 665-8181