Tisdag 25 Augusti | 13:50:34 Europe / Stockholm
Est. tid*
2027-03-08 N/A Årsstämma
2027-02-11 N/A Bokslutskommuniké 2026
2026-11-05 17:45 Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-10-02 N/A X-dag halvårsutdelning EIK 0.55
2026-08-18 - Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-05-07 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-04-17 - X-dag halvårsutdelning EIK 0.55
2026-02-05 - Bokslutskommuniké 2025
2025-10-29 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-09-26 - X-dag halvårsutdelning EIK 0.5
2025-08-13 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-05-08 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-04-11 - X-dag halvårsutdelning EIK 0.5
2025-02-13 - Bokslutskommuniké 2024
2024-10-31 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-08-15 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-05-02 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-04-12 - X-dag ordinarie utdelning EIK 0.74 ISK
2024-04-11 - Årsstämma
2024-02-15 - Bokslutskommuniké 2023
2023-11-15 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-17 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-04-27 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-02-28 - Bokslutskommuniké 2022
2022-10-27 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-08-25 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-05 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2021-04-29 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-25 - Årsstämma
2021-02-11 - Bokslutskommuniké 2020
2020-10-28 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-08-27 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-06-10 - Årsstämma
2020-04-29 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-03-10 - Bokslutskommuniké 2019
2019-10-31 - Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-28 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-05-08 - Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-04-11 - X-dag ordinarie utdelning EIK 0.29 ISK
2019-04-10 - Årsstämma
2019-03-07 - Bokslutskommuniké 2018
2016-04-13 - X-dag ordinarie utdelning EIK 0.24 ISK
LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFastigheter
IndustriFörvaltning
Eik fasteignafélag är ett fastighetsbolag. Bolaget förvärvar, utvecklar och hyr ut fastigheter, med störst inriktning mot leasing och uthyrning av kommersiella fastigheter. Fastighetsbeståndet består av varierande typer av lokaler, anpassat för kontor, lager och butikskedjor, med störst verksamhet inom den isländska marknaden. Kunderna återfinns huvudsakligen bland små – och medelstora företag. Utöver uthyrning bistår bolaget med support och fastighetsunderhåll.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Eik fasteignafélag hf.: Árshlutauppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2026

2026-08-18 17:43:21

Árshlutareikningur Eikar fasteignafélags hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2026 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins þann 18. ágúst 2026.

Meðfylgjandi er árshlutaskýrsla sem inniheldur árshlutareikning vegna fyrstu sex mánaða ársins 2026 ásamt ítarlegri upplýsingum um rekstur félagsins en fram koma í tilkynningunni.

Helstu niðurstöður árshlutareikningsins eru:

  • Rekstrartekjur námu 7.150 m.kr.
    • Þar af námu leigutekjur 6.330 m.kr.
  • Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 4.578 m.kr.
  • Heildarhagnaður nam 3.794 m.kr.
  • Handbært fé frá rekstri nam 2.516 m.kr.
  • Bókfært virði fjárfestingareigna nam 182.251 m.kr.
  • Matsbreyting fjárfestingareigna var 6.285 m.kr.
  • Söluhagnaður fjárfestingareigna nam 115 m.kr.
  • Handbært fé nam 5.854 m.kr.
  • Vaxtaberandi skuldir námu 114.514 m.kr.
  • Nettó skuldsetningarhlutfall (nettó vaxtaberandi skuldir / virði fasteigna, lóða og byggingarheimildina) nam 59,6%
  • Hagnaður á hlut var 1,12 kr.
  • Virðisútleiguhlutfall var 95,1%.
  • Vegnir verðtryggðir vextir námu 3,78%.
  • Vegnir óverðtryggðir vextir námu 8,97%.

Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri:

„Afkoma félagsins hefur verið góð það sem af er ári og má sjá kröftugan vöxt í tekjum og EBITDA á milli ára.

Á öðrum ársfjórðungi gekk félagið frá kaupum á Hádegismóum 8, um 4.000 fermetra eign með langtíma „triple net" leigusamningi við einn leigutaka. Eignin er skýrt dæmi um þá stefnu sem félagið hefur mótað um uppbyggingu eignasafnsins: stórar eignir, öflugir leigutakar og langir leigusamningar. Félagið seldi einnig lóð sína að Járnhálsi 4.

Nýtt dótturfélag Eikar, Vigur Kredit, keypti sitt fyrsta veðskuldabréf á fjórðungnum, tryggt með öðrum veðrétti í fasteign sem félagið telur að myndi sóma sér vel í eigin eignasafni. Þetta er fyrsta raunverulega dæmið um þá fjármögnunarleið sem kynnt var í bréfi til hluthafa í mars,  að nýta stöðu félagsins til að fjármagna á síðari veðrétti með veði í atvinnufasteignum — komin til framkvæmda.

Útgáfa skuldabréfa hefur haldið áfram í samræmi við útgáfuáætlun félagsins. Félagið er nú með þrjár afurðir sem henta ólíkum þörfum fjárfesta og hefur þeim öllum verið vel tekið.

Horfur félagsins fyrir árið 2026 hafa verið endurskoðaðar til hækkunar í ljósi breytinga á eignasafni og annarra þátta sem hafa áhrif á afkomu seinni hluta ársins."

Rekstur félagsins

Rekstur Eikar var áfram öflugur á fyrri helmingi ársins 2026 og var EBITDA við efri mörk afkomuspár félagsins. Rekstrartekjur félagsins námu 7.150 m.kr., þar af voru leigutekjur 6.330 m.kr., sem jafngildir 21,3% aukningu frá sama tímabili árið 2025. Rekstrarkostnaður nam 2.572 m.kr.

Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu, söluhagnað og afskriftir (EBITDA) jókst um 24% samanborið við sama tímabil í fyrra og nam 4.578 m.kr. Leiðrétt fyrir einskiptiliðum á árinu 2025 nam aukningin um 21% á milli ára. Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 4.744 m.kr. og heildarhagnaður samstæðunnar á tímabilinu nam 3.794 m.kr.

NOI hlutfall (þ.e. rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir) nam 71,8% á fyrstu sex mánuðum ársins 2026 samanborið við 69,6% á sama tímabili árið áður.

Efnahagur félagsins

Heildareignir félagsins námu 196.105 m.kr. þann 30. júní 2026. Þar af eru fjárfestingareignir að virði 182.251 m.kr. og eignir til eigin nota námu 5.373 m.kr. Eigið fé félagsins nam 54.828 m.kr. í lok tímabilsins. Nettó skuldsetningarhlutfall félagsins (nettó vaxtaberandi skuldir / virði fasteigna, byggingarheimilda og lóða) var 59,6%. Á aðalfundi félagsins þann 16. apríl 2026 var samþykkt að greiða út arð til hluthafa vegna rekstrarársins 2025 að fjárhæð 3.732,74  m.kr. og að hann yrði greiddur í tveimur greiðslum. Útborgunardagur vegna fyrri greiðslunnar var 28. apríl 2026 og verður 14. október 2026 vegna seinni greiðslunnar. Eigið fé félagsins tekur mið af framangreindri skuldbindingu.

Heildarskuldir félagsins námu 141.277 m.kr. þann 30. júní 2026. Þar af voru vaxtaberandi skuldir 114.514 m.kr. og tekjuskattsskuldbinding 16.498 m.kr.    

Það sem liðið er af árinu hefur félagið gefið út þrjá nýja skuldabréfaflokka. Samtals voru gefin út skuldabréf að nafnvirði 4.300 m.kr. í flokki EIK 120266, 5.980 m.kr. í EIK 150531 og 4.080 m.kr. í EIK 29 1. Jafnframt keypti félagið til baka skuldabréf að nafnvirði 2.720 m.kr. í flokki EIK 050726, sem var á lokagjalddaga í júlí 2026 og hefur nú verið greiddur upp að fullu.

Eignasafn félagsins

Í lok júní gekk félagið frá kaupum á Hádegismóum 8 fyrir 2,6 ma.kr. Samhliða kaupunum var skrifað undir leigusamning við Brimborg til 20 ára. Áætlað er að kaupin muni hafa um 195 m.kr. jákvæð áhrif á EBITDA félagsins á ársgrundvelli.
 
Félagið hefur selt þrjár eignir á árinu, Suðurlandsbraut 20, lóðina við Járnháls 4 og íbúðarhúsalóð við Fossveg 3 á Selfossi. Samanlagt söluverð af seldum eignum var um 1.270 m.kr. og nam söluhagnaður 115 m.kr.

Uppfærðar horfur

Félagið hefur uppfært horfur fyrir árið 2026 sem tekur mið af breyttu eignasafni, áætluðum kostnaði við kaupréttarsamninga og öðrum þáttum sem hafa áhrif á afkomuna. Félagið væntir þess að EBITDA ársins 2026 verði á bilinu 9.330 – 9.610 m.kr.

Horfur miðast við vísitölu neysluverðs í júlí 2026.

Kynningarfundur

Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila verður haldinn miðvikudaginn 19. ágúst 2026 klukkan 8:30 á skrifstofu félagsins á 18. hæð i Smáratorgi 3. Boðið verður upp á léttan morgunmat frá kl. 8.00. Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármála og UT, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu.

Fundinum verður einnig streymt á netinu og fer skráning á rafræna fundinn fram hér:

https://vimeo.com/event/6116178/ae551f3242

Eftir skráningu fá þátttakendur tölvupóst með nánari upplýsingum.

Markaðsaðilar geta sent spurningar fyrir fundinn á netfangið fjarfestatengsl@eik.is. Spurningum verður svarað að kynningu lokinni.

Nánari upplýsingar veita:

Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri, hreidar@eik.is
Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármála og UT, lydur@eik.is, s. 820-8980