Eik fasteignafélag hf.: Útboð skuldabréfa 10. september 2026
Eik fasteignafélag hf. („Eik”) efnir til útboðs á skuldabréfum fimmtudaginn 10. september 2026.
Skuldabréfaflokkar í útboði og hámarksfjárhæðir
| Flokkur | Hámarksnafnverð |
| EIK 29 1 | 920 milljónir kr. |
| EIK 150531 | 1.020 milljónir kr. |
| EIK 120266 | 1.500 milljónir kr. |
Heildarfjárhæð samþykktra tilboða í útboðinu verður að hámarki 3.000 milljónir kr. í ofangreinda flokka.
Fyrirkomulag útboðs:
Hreint verð EIK 29 1 er fast og verður 98,7456. Óskað er eftir tilboðum í magni í flokknum.
Í EIK 150531 og EIK 120266 er óskað eftir tilboðum á ávöxtunarkröfu. Öll samþykkt tilboð verða tekin á hæstu samþykktu ávöxtunarkröfunni í hvorum flokk fyrir sig.
Eik áskilur sér rétt til að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta.
Áætlaður uppgjörsdagur: 17. september 2026
Umsjón og tilboðsfrestur:
Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á netfangið skuldabrefamidlun@arionbanki.is fyrir kl. 16:00 fimmtudaginn 10. september 2026.
Nánari upplýsingar veitir:
Lýður Heiðar Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármála og UT, lydur@eik.is, s. 820-8980