Eik fasteignafélag hf.: Útboð skuldabréfa 24. nóvember 2026
Eik fasteignafélag hf. („Eik“) efnir til útboðs á skuldabréfum þriðjudaginn 24. nóvember 2026.
Skuldabréfaflokkur í útboði og hámarks nafnverð.
| Flokkur | Hámarks nafnverð |
| EIK 120266 | 1.300 milljónir kr. |
Skuldabréfaflokkurinn EIK 120266 er óuppgreiðanlegur, ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur afborgana og vaxta á sex (6) mánaða fresti með lokagjalddaga 2066. Áður hefur verið gefið út fyrir 6.700 m.kr. að nafnvirði í flokknum. EIK 120266 deilir veðsafni með þegar útgefnum skuldabréfaflokkum félagsins EIK 100327, EIK 150531, EIK 141233, EIK 050734, EIK 150536, EIK 100346, EIK 161047 og EIK 050749 ásamt tilteknum lánum frá fjármálastofnunum.
Fyrirkomulag útboðs
Fyrirkomulag útboðsins verður með þeim hætti að öll samþykkt tilboð verða tekin á hæstu samþykktu ávöxtunarkröfunni. Eik áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum, eða taka tilboðum að hluta.
Áætlaður uppgjörsdagur vegna útboðsins er 1. desember 2026.
Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á netfangið: skuldabrefamidlun@arionbanki.is þann 24. nóvember 2026 fyrir kl. 16:00.
Nánari upplýsingar veitir:
Lýður Heiðar Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármála og UT, lydur@eik.is, s. 820-8980.