Tisdag 10 November | 17:13:28 Europe / Stockholm
Est. tid*
2027-03-09 16:35 Bokslutskommuniké 2026
2026-11-10 21:35 Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-08-25 - Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-05-05 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-03-27 - X-dag ordinarie utdelning EIM 4.22 ISK
2026-03-03 - Bokslutskommuniké 2025
2025-11-04 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-08-26 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-05-13 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-03-28 - X-dag ordinarie utdelning EIM 13.33 ISK
2024-03-08 - X-dag ordinarie utdelning EIM 22.53 ISK
2024-03-07 - Årsstämma
2024-02-13 - Bokslutskommuniké 2023
2023-11-07 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-15 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-16 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-10 - X-dag ordinarie utdelning EIM 20.08 ISK
2023-03-09 - Årsstämma
2022-03-18 - X-dag ordinarie utdelning EIM 14.27 ISK
2022-02-14 - Bokslutskommuniké 2022
2021-03-26 - X-dag ordinarie utdelning EIM 2.47 ISK
2020-04-01 - X-dag ordinarie utdelning EIM 0.00 ISK
2020-03-26 - Årsstämma
2020-02-27 - Bokslutskommuniké 2019
2019-11-21 - Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-29 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-05-23 - Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-29 - X-dag ordinarie utdelning EIM 3.50 ISK
2019-03-28 - Årsstämma
2019-02-28 - Bokslutskommuniké 2018
2018-03-23 - X-dag ordinarie utdelning EIM 6.80 ISK
2018-03-22 - Årsstämma
2017-03-24 - X-dag ordinarie utdelning EIM 6.80 ISK
2017-02-23 - Bokslutskommuniké 2016
2016-11-17 - Kvartalsrapport 2016-Q3
2016-08-25 - Kvartalsrapport 2016-Q2
2016-05-26 - Kvartalsrapport 2016-Q1
2016-03-18 - X-dag ordinarie utdelning EIM 6.50 ISK
2016-03-17 - Årsstämma
2016-02-25 - Bokslutskommuniké 2015
2015-11-19 - Kvartalsrapport 2015-Q3
2015-08-27 - Kvartalsrapport 2015-Q2
2015-05-21 - Kvartalsrapport 2015-Q1
2015-03-27 - X-dag ordinarie utdelning EIM 5.00 ISK
2015-03-26 - Årsstämma
2015-02-26 - Bokslutskommuniké 2014
2014-11-20 - Kvartalsrapport 2014-Q3
2014-08-28 - Kvartalsrapport 2014-Q2
2014-05-22 - Kvartalsrapport 2014-Q1
2014-03-28 - X-dag ordinarie utdelning EIM 2.60 ISK
2014-03-27 - Årsstämma
2014-02-27 - Bokslutskommuniké 2013
2013-11-21 - Kvartalsrapport 2013-Q3
2013-08-29 - Kvartalsrapport 2013-Q2
2013-05-23 - Kvartalsrapport 2013-Q1
2013-04-04 - X-dag ordinarie utdelning EIM 2.10 ISK
2013-04-03 - Årsstämma
2013-02-28 - Bokslutskommuniké 2012
2012-11-29 - Kvartalsrapport 2012-Q3
2012-08-29 - Kvartalsrapport 2012-Q2
LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorTjänster
IndustriShipping & Offshore
Eimskipafélag Íslands är verksamma inom transport och logistikbranschen. Bolaget erbjuder ett brett utbud av tjänster, inkluderat flyg- och sjötransport, container- och terminalhantering, lagerhållning samt övriga speditionstjänster. Utöver förfogar bolaget över en flotta bestående av fartyg i olika storlekar, huvudsakligen anpassat för transport av torrbulk och specialutrustning. Verksamhet innehas på global nivå, med störst marknad inom Europa, Nordamerika och Asien.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Eimskip: Afkoma þriðja ársfjórðungs 2026

2026-11-10 16:43:53

Góð afkoma á þriðja ársfjórðungi og bati milli ára þrátt fyrir krefjandi ytra umhverfi vegna mikilla kostnaðarhækkana út af þróun olíuverðs. Aukið flutningsmagn, sterkari grunnrekstur og ávinningur af hagræðingaraðgerðum studdu við bætta afkomu allra starfsþátta félagsins.

Helstu atriði í afkomu þriðja ársfjórðungs

Tekjur á þriðja ársfjórðungi jukust um 19,4% frá sama tímabili í fyrra. Tekjuvöxturinn skýrist einna helst af auknu flutningsmagni og hærri alþjóðlegum flutningsverðum sem endurspegla verulega hækkun olíuverðs.

  • Tekjur í siglingakerfinu jukust um 13,8% og flutningsmagn um 6,8%. Sterkur útflutningur sjávarafurða og eldisfisks frá Íslandi og Færeyjum studdi við magn-og tekjuvöxtinn, meðal annars vegna nýrrar beinnar tengingar milli Þórshafnar og Rotterdam en þjónustan hófst í ágúst síðastliðnum.
  • Tekjur í annarri flutningatengdri þjónustu jukust um 14,4%, einkum vegna aukinna umsvifa í landflutningum á Íslandi. Þá var afkoman studd af aukinni vöruhúsastarfsemi, meðal annars vegna nýrrar kæli- og frystigeymslu í Danmörku og bættri afkomu af hafnarstarfsemi. Umboðsþjónusta skilaði góðri afkomu þrátt fyrir færri komur skemmtiferðaskipa en á sama tímabili í fyrra.
  • Tekjur í alþjóðlegri flutningsmiðlun jukust um 30%, drifin áfram af 11,2% aukningu flutningsmagns og verulega hærri alþjóðlegum flutningsverðum. Vöxturinn var sérstaklega sterkur á leiðum tengdum Asíu.

Rekstrarkostnaður jókst um 16,7% milli ára. Hækkunin skýrist einkum af auknum umsvifum, hærri flutningskostnaði greiddum til þriðja aðila og verulegri hækkun olíuverðs. Olíukostnaður skipa jókst um 6,1 milljón evra eða 56% sem var minni hækkun en 78% hækkun markaðsverðs sem skýrist aðallega af tímasetningum olíukaupa. Hærra olíuverð hafði jafnframt áhrif á kostnað við landflutninga, hafnarstarfsemi og aðra aðkeypta flutningaþjónustu.

Launakostnaður jókst um 1,8 milljónir evra eða 4,6% milli ára. Þar af námu áhrif gengisbreytinga um 1,0 milljón evra, einkum vegna veikingar evru gagnvart íslenskri og norskri krónu. Að frátöldum gengisáhrifum jókst launakostnaður um 2,0%. Meðalfjöldi stöðugilda á fjórðungnum var 42 færri en á sama tímabili í fyrra.

EBITDA á þriðja ársfjórðungi jókst um 8,9 milljónir evra eða 43,6% frá sama tímabili í fyrra. Bætt afkoma endurspeglar jákvæða magnþróun, aukna skilvirkni og ávinning af aðgerðum til að bæta rekstur félagsins. Við samanburð milli ára þarf að hafa í huga að í EBITDA á þriðja ársfjórðungi 2025 var sölutap tengt sölu á Lagarfoss að fjárhæð 2,9 milljónir evra.

Aðgerðir til að bæta rekstur félagsins, sem kynntar voru á síðari hluta árs 2025, skiluðu 3,3 milljónum evra ávinningi á þriðja ársfjórðungi, þar af 2,9 milljónum evra jákvæðum áhrifum á EBITDA. Á fyrstu níu mánuðum ársins námu áhrifin samtals 9,4 milljónum evra, þar af 8,0 milljóna evra á EBITDA.

Veruleg aukning varð í afkomu hlutdeildarfélaga sem nam 7,3 milljónum evra samanborið við 3,5 milljónir evra á sama tímabili í fyrra. Aukningin skýrist einkum af sölu skips hjá Elbfeeder í júlí.

Aukin umsvif á fjórðungnum leiddu til aukinnar veltufjárbindingar sem hafði áhrif á sjóðstreymi. Gert er ráð fyrir betra jafnvægi í þróun veltufjár á fjórða ársfjórðungi.

Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri
„Við erum heilt yfir ánægð með afkomu þriðja ársfjórðungs. Jákvæð þróun frá öðrum ársfjórðungi hélt áfram og afkoman batnaði verulega frá sama tímabili í fyrra. Það er ánægjulegt að sjá að þær fjölmörgu aðgerðir sem við höfum ráðist í eru að skila skýrum árangri.

Afkoma allra starfsþátta batnaði milli ára, en batinn er mest áberandi í siglingakerfinu. Að teknu tilliti til sölutaps vegna Lagarfoss í fyrra jókst EBITDA siglingakerfisins um 3,5 milljónir evra. Þrátt fyrir þennan bata er arðsemin enn ófullnægjandi. EBIT siglingakerfisins nam aðeins um 500 þúsund evrum á fjórðungnum, í starfsþætti sem er mjög fjárfestingafrekur. Við eigum því enn verk fyrir höndum.

Á árinu 2025 tókum við ákvörðun um að hætta sérstökum strandsiglingum og fækka gámaskipum um eitt. Í kjölfar samdráttar í framleiðslu Norðuráls gripum við til frekari aðgerða með það að markmiði að tryggja að Eimskip stæði á sterkari grunni þegar framleiðsla Norðuráls næði aftur fyrri afköstum.

Á fyrstu 9 mánuðum þessa árs hafa þessar aðgerðir skilað um 9,4 milljónum evra í bættri afkomu. Þar af nema áhrifin á EBITDA um 8 milljónum evra og um 2,9 milljónum evra á þriðja ársfjórðungi. Þessi árangur hefur náðst þrátt fyrir krefjandi ytri aðstæður með gríðarlegum hækkunum á heimsmarkaðsverði á olíu, sem hefur haft mikil áhrif á bæði beinan og óbeinan kostnaðargrunn félagsins.

Á þriðja ársfjórðungi gerðum við breytingar á siglingakerfinu og bættum við nýrri leið milli Þórshafnar í Færeyjum og Rotterdam, með viðkomu í Álasundi í Noregi. Samhliða breyttum við siglingaáætlun norsku línunnar og fækkuðum þar um eitt skip. Með breytingunum erum við að mæta aukinni framleiðslu eldislax í Færeyjum og kröfum viðskiptavina um betri og áreiðanlegri tengingar við Evrópumarkað. Fyrstu mánuðirnir hafa gengið vel og viðbrögð viðskiptavina verið mjög jákvæð.

Í sumar hófum við jafnframt undirbúning að stofnun Kales Ísland ehf. í samstarfi við Kales Group B.V. Félagið var valið umboðsaðili Air China á Íslandi fyrir flugfrakt. Ný flugtenging Air China milli Íslands og Kína skapar spennandi tækifæri, sérstaklega fyrir íslensk útflutningsfyrirtæki. Fyrsta flug Air China milli Keflavíkur og Peking var 26. október og hefur eftirspurn eftir flutningsrými verið góð.

Þrátt fyrir góðan bata eru markaðsaðstæður áfram krefjandi. Við göngum þó inn í fjórða ársfjórðung með gott veganesti. Áherslan verður áfram á áreiðanlega og sjálfbæra þjónustu við viðskiptavini, rekstraraga og kostnaðaraðhald. Við ætlum að byggja áfram á þeim árangri sem náðst hefur og festa umbæturnar í sessi sem styrkja félagið til lengri tíma.“

Kynningarfundur 11. nóvember 2026

Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri, og Rósa Guðmundsdóttir, fjármálastjóri, munu kynna uppgjör þriðja ársfjórðungs 2026. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 11. nóvember nk. kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Sundabakka 2, 2. hæð. Fundurinn verður einnig sendur út í gegnum fjárfestasíðu félagsins www.eimskip.com/investors. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en fundurinn hefst. Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir fundinn á netfangið investors@eimskip.com.

Skjöl og upptaka af fundinum verða aðgengileg á fjárfestasíðu félagsins, www.eimskip.is/investors.