Festi hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun - vika 38
Í 38. viku 2026 keypti Festi alls 200.000 eigin hluti fyrir 60.062.500 kr. eins og hér segir:
| Vika | Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | ||||||
| 38 | 14.9.2026 | 11:32:23 | 50.000 | 299,0 | 14.950.000 | ||||||
| 38 | 17.9.2026 | 13:19:24 | 75.000 | 299,5 | 22.462.500 | ||||||
| 38 | 18.9.2026 | 10:35:13 | 75.000 | 302,0 | 22.650.000 | ||||||
| 200.000 | 60.062.500 | ||||||||||
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Fyrir kaupin þá átti Festi 5.968.309 hluti eða 1,91% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 2.489.445 eigin hluti fyrir 768.442.603 kr. og á í dag 6.168.309 hluti sem samsvarar 1,97% af hlutafé félagsins. Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 1. júlí 2026 í tilkynningu til Nasdaq Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 3.000.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 0,96% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 1.000 milljónir króna að kaupverði.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. (mki@festi.is).