Tisdag 3 November | 19:07:31 Europe / Stockholm
Est. tid*
2027-02-03 N/A Bokslutskommuniké 2026
2026-10-28 - Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-07-28 - Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-05-07 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-03-05 - Årsstämma
2026-03-04 - X-dag ordinarie utdelning FESTI 7.00 ISK
2026-02-05 - Bokslutskommuniké 2025
2025-10-30 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-07-29 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-04-29 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-03-05 - Årsstämma
2025-03-04 - X-dag ordinarie utdelning FESTI 4.50 ISK
2025-02-05 - Bokslutskommuniké 2024
2024-10-30 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-07-31 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-04-23 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-21 - X-dag ordinarie utdelning FESTI 3.00 ISK
2024-03-20 - Årsstämma
2024-02-07 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-25 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-27 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-03 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-22 - X-dag ordinarie utdelning FESTI 3.00 ISK
2022-03-02 - Årsstämma
2022-02-04 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-28 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-28 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-04-28 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-22 - Årsstämma
2021-02-24 - Bokslutskommuniké 2020
2020-03-23 - Årsstämma
2019-03-22 - X-dag ordinarie utdelning FESTI 0.00 ISK
2019-03-21 - Årsstämma
2019-02-27 - Bokslutskommuniké 2018
2016-03-17 - X-dag ordinarie utdelning FESTI 3.00 ISK
LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFinans
IndustriInvesteringar
Festi är ett holdingbolag. Inom koncernen erbjuds ett brett utbud av konsultlösningar riktade mot affärsutveckling. Specialistkompetens återfinns huvudsakligen inom finans och riskhantering, där kunderna består av små- och medelstora företag runtom den isländska marknaden. Kunderna är verksamma inom ett flertal sektorer, från energi- och livsmedelsindustrin, till fastighetssektorn.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Festi hf.: Tilkynning um endurkaup á eigin bréfum með öfugu tilboðsfyrirkomulagi

2026-11-03 17:14:27

 Á aðalfundi Festi hf. sem haldinn var þann 5. mars 2026 var samþykkt að heimila félaginu að kaupa fram að næsta aðalfundi, hlutabréf í félaginu fyrir allt að 10% af heildarhlutafé félagsins. Stjórn Festi hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins og/eða að gera félaginu kleift að standa við skuldbindingar samkvæmt kaupréttarsamningum við starfsmenn.

Endurkaupin munu að hámarki nema 1.000 milljónir króna. Við endurkaup skal hæsta leyfilega endurgjald fyrir hvern hlut ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.

Samið hefur verið við Arion banka um að annast endurkaupin. Kaupin hefjast með öfugu tilboðsfyrirkomulagi. Allir hluthafar Festi geta gert tilboð um að selja bréf sín til félagsins fyrir milligöngu Arion banka. Festi áskilur sér rétt til að taka eða hafna hvaða tilboði sem er í heild eða að hluta. Hluthafar tilgreina í sölutilboðum sínum fjölda hluta og lágmarksverð á hlut sem þeir eru reiðubúnir að samþykkja. Tilboðum verður tekið frá lægsta verði þar til fyrirhuguðu umfangi kaupanna er náð, innan tilgreindra hámarka. Allir hlutir sem félagið kaupir verða keyptir á sama verði, sem nemur hæsta verði samþykktra sölutilboða.

Endurkaupin eru gerð í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. MAR (reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum), sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Tilboðum skal skila til markaðsviðskipta Arion banka sem einnig svara fyrirspurnum, á netfangið verdbrefamidlun@arionbanki.is merkt „Festi endurkaup“ fyrir kl. 08:30, 04. nóvember 2026.

Niðurstöður verða tilkynntar í fréttakerfi Nasdaq Iceland fyrir kl. 9:30, 04. nóvember 2026. Uppgjörsdagur samþykktra tilboða er T+2 eða 06. nóvember 2026.

Festi á samtals 6.678.864 eigin hluti áður en endurkaupin samkvæmt tilboðsfyrirkomulaginu hefjast eða sem samsvarar 2,14% af hlutafé félagsins.