Tisdag 30 Juni | 21:10:27 Europe / Stockholm
Est. tid*
2027-04-29 N/A Bokslutskommuniké 2026
2027-01-14 09:00 Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-10-15 09:00 Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-06-30 09:00 Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-05-22 - X-dag ordinarie utdelning HAGA 3.03 ISK
2026-05-21 - Årsstämma
2026-04-21 - Bokslutskommuniké 2025
2026-01-14 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-10-16 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-06-26 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-05-28 - X-dag ordinarie utdelning HAGA 2.28 ISK
2025-05-27 - Årsstämma
2025-04-15 - Bokslutskommuniké 2024
2025-01-09 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-10-17 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-06-28 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-05-31 - X-dag ordinarie utdelning HAGA 2.33 ISK
2024-05-30 - Årsstämma
2024-04-23 - Bokslutskommuniké 2023
2024-01-11 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-10-18 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-06-28 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-06-02 - X-dag ordinarie utdelning HAGA 2.24 ISK
2023-06-01 - Årsstämma
2023-04-27 - Bokslutskommuniké 2022
2023-01-11 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-10-19 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-06-30 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-06-02 - X-dag ordinarie utdelning HAGA 2.00 ISK
2022-06-02 - Årsstämma
2022-05-10 - Bokslutskommuniké 2021
2022-01-12 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-10-19 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-06-25 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-06-10 - Årsstämma
2021-05-19 - Bokslutskommuniké 2020
2021-01-14 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-10-29 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-06-09 - Årsstämma
2020-05-29 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-05-18 - Bokslutskommuniké 2019
2020-01-20 - Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-10-29 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-06-28 - Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-06-07 - Årsstämma
2019-05-16 - Bokslutskommuniké 2018
2019-01-30 - Kvartalsrapport 2018-Q3
2016-06-06 - X-dag ordinarie utdelning HAGA 1.70 ISK
LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorHandel & varor
IndustriDetaljhandel
Hagar är en koncern med verksamhet inom detalj- och livsmedelsbranschen. Koncernen äger, driver och utvecklar flertalet dagligvaruhandelskedjor runtom på den isländska marknaden, samt olika modekedjor och lagerlokaler. Verksamhet utgår ifrån koncernens dotterbolag, som antingen drivs självständigt eller via franschisesamarbete på internationell nivå. Exempel på bolag som återfinns inom koncernen är Hagkaup, Bonus samt Hýsing.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Hagar hf.: Uppgjör Haga á 1. ársfjórðungi 2026/27

2026-06-30 18:04:36

Sterkur rekstur í byrjun árs þar sem starfsemi allra rekstrareininga gengur vel

Árshlutareikningur Haga hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2026/27 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 30. júní 2026. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2026. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf.


Helstu lykiltölur

  • Vörusala 1F nam 50.785 m.kr. (5,5% vöxtur frá 1F 2025/26). [1F 2025/26: 48.115 m.kr.]
  • Framlegð 1F nam 13.281 m.kr. (26,2%). [1F 2025/26: 11.619 m.kr. (24,1%)]
  • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 1F nam 5.136 m.kr. eða 10,1% af veltu. [1F 2025/26: 4.046 m.kr. (8,4%)]
  • Hagnaður 1F nam 1.917 m.kr. eða 3,8% af veltu. [1F 2025/26: 1.165 m.kr. (2,4%)]
  • Heildarafkoma 1F nam 2.011 m.kr. [1F 2025/26: 1.189 m.kr.]
  • Grunnhagnaður á hlut 1F var 1,77 kr. [1F 2025/26: 1,06 kr.]. Þynntur hagnaður á hlut 1F var 1,76 kr. [1F 2025/26: 1,05 kr.]
  • Eigið fé nam 44.741 m.kr. í lok tímabils og eiginfjárhlutfall 37,7%. [Árslok 2025/26: 42.779 m.kr. og 37,1%]
  • Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2026/27 gerir ráð fyrir að EBITDA verði á bilinu 18.800-19.300 m.kr.


Helstu fréttir af starfsemi

  • Sterk byrjun á rekstrarárinu þar sem bættur rekstur hjá Olís er að miklu leyti afleiðing tímabundinna áhrifa á afkomu viðskipta við stórnotendur vegna hækkandi heims-markaðsverðs olíu - afkoma verslana og vöruhúsa á Íslandi styrkist einnig nokkuð milli ára.
  • Heimsóknum viðskiptavina í dagvöru­verslanir (á Íslandi) fjölgaði um 1,3% og seldum stykkjum um 2,0% - vöxtur maímánaðar var hóflegur í samanburði við fyrra ár en júní sýnir umtalsvert meiri vöxt en 1F.
  • Seldum eldsneytislítrum fækkaði um 3,7% á fyrsta ársfjórðungi þar sem samdráttur var bæði á smásölu- og fyrirtækjasviði – mælingar Vegagerðarinnar á tímabilinu sýna fækkun í eknum kílómetrum.
  • Góður rekstur hjá SMS í Færeyjum þar sem viðskiptavinum fjölgar um 1,0% – afkoma dregst lítillega saman milli ára, að mestu vegna einskiptisáhrifa í tengslum við truflanir á skipasendingum.
  • Nýtt innkaupsamstarf Haga og Salling Group skilaði yfir 350 nýjum vörum í hillur verslana Bónus og Hagkaups á 1F – lægra verð og aukið úrval fyrir viðskiptavini.
  • Þrátt fyrir að afkoma á 1F sé umfram áætlanir er afkomuspá stjórnenda ekki hækkuð að svo stöddu –  óvissa er um þróun heimsmarkaðsverðs olíu og afkomubati Olís gengur að hluta til baka samhliða lækkun á heimsmarkaðsverði.


Finnur Oddsson, forstjóri:         

Rekstur Haga á fyrstu mánuðum rekstrarársins 2026/27 fór vel af stað, en litast af áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum. Vörusala nam 50,8 ma. kr. og jókst um 5,5% frá fyrra ári. EBITDA nam 5,1 ma. kr. og hagnaður tímabilsins nam 1,9 ma. kr., sem er umtalsverð aukning milli ára. Starfsemi gekk vel á öllum sviðum samstæðunnar en afkoma tímabilsins litast af óvenjulegum aðstæðum á olíumörkuðum.

Starfsemi verslana og vöruhúsa á Íslandi gekk vel á fjórðungnum, en tekjur jukust um 6,4% og námu 35,7 ma. kr. Heimsóknum í verslanir og seldum stykkjum fjölgaði heilt yfir og ánægjulegt er að sjá hvernig nýjar vörur frá Salling Group eru þegar farnar að skila sér til viðskiptavina í formi aukins vöruúrvals, enn betri gæða og lægra verðs. Í lok fjórðungs voru um 350 nýjar vörur frá Salling Group komnar í hillur verslana Bónus og Hagkaups, en þeim hefur svo fjölgað í tæplega 500 nú í upphafi annars fjórðungs. Umræddar vörur frá Salling koma almennt inn á lægra verði en sambærilegar vörur sem bjóðast hérlendis. Salling-samstarfið styður þannig við markmið Bónus um að bjóða upp á hagkvæmustu vörukörfuna um allt land, en um helmingur vöruvals í verslunum Bónus hefur lækkað í verði eða staðið í stað frá sama tíma í fyrra. Verslun Bónus á Selfossi var stækkuð og endurbætt með áherslu á betri verslunarupplifun, auk þess sem tilkynnt var um fyrirhugaða opnun í Þorlákshöfn.

Hagkaup gekk vel, en fjölbreytt vöruúrval, stöðugar nýjungar, skemmtilegir viðburðir og aukin stafræn þjónusta mælast sem fyrr vel fyrir hjá viðskiptavinum. Tekjur og afkoma Aðfanga og Banana endurspegla áfram styrkingu í rekstri dagvöruverslana. Rekstur Zara, Eldum rétt og Stórkaups var heldur umfram áætlanir og fyrra ár, en tekjur Stórkaups vaxa áfram hratt, eða um yfir 20% milli ára.

Afkoma Olís var mjög sterk á fjórðungnum þrátt fyrir að seldum eldsneytislítrum hafi heldur fækkað milli ára, en tekjur starfsþáttarins jukust um 2,1% og námu 11,6 ma.kr. Bætt afkoma skýrist að mestu af afar óvenjulegum aðstæðum á olíumarkaði frá því í byrjun mars, þar sem hröð og mikil hækkun heimsmarkaðsverðs á eldsneyti hafði þau áhrif að afkoma af sölu til stórnotenda jókst mikið, vegna eðlis samninga. Þessi áhrif eru þó tímabundin og snúast að einhverju leyti við þegar heimsmarkaðsverð lækkar, líkt og þegar er farið að raungerast á öðrum ársfjórðungi. Afkoma af sölu eldsneytis í smásölu dregst heldur saman milli ára vegna lækkaðrar framlegðar á fjórðungnum og færri ekinna kílómetra. Í lok tímabils var kostnaðarverð hluta eldsneytisbirgða Olís hærra en áætlað söluverð og voru birgðir því færðar niður á fyrsta fjórðungi.  Að öðru leyti er rekstur Olís í samræmi við áætlanir og áfram stígandi í sölu á þjónustu og vörum öðrum en eldsneyti, m.a. þurrvöru og veitingum, auk bílaþvotta hjá Glans.

Starfsemi SMS í Færeyjum gekk almennt vel á fjórðungnum og heimsóknum viðskiptavina fjölgaði. Afkoma var þó lítillega lakari en á sama tíma í fyrra, einkum vegna einskiptis tekjutaps í kjölfar truflana á vöruflutningum og aukinnar rýrnunar.

Rekstur Haga á fyrsta fjórðungi rekstrarársins var umfram áætlanir vegna sterkrar afkomu Olís. Veruleg óvissa er um þróun á heimsmarkaði með olíu en olíuverð hefur farið lækkandi í byrjun annars ársfjórðungs. Því má gera ráð fyrir að jákvæð áhrif á afkomu Olís á fyrsta ársfjórðungi, vegna viðskipta við stórnotendur, munu að hluta ganga til baka en óljóst er hversu mikið og hversu hratt. Af þeim sökum er afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2026/27 ekki hækkuð að svo stöddu.

Hagar munu sem fyrr skipa sér í varnarlínu gegn hækkun aðfanga og matvöruverðbólgu, þar sem mikilvægustu verkfærin tengjast innkaupum og aukinni skilvirkni í rekstri. Innkaupasamstarf við Salling Group styður við þessar áherslur, sem og frábært starfsfólk samstæðunnar sem leggur sig fram á hverjum degi við að gera verslun bæði hagkvæma og skemmtilega. Rekstur allra helstu eininga gengur vel, fjárhagsstaða félagsins er sterk og horfur í rekstri góðar.


Rafrænn kynningarfundur miðvikudaginn 1. júlí 2026

Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn miðvikudaginn 1. júlí kl. 08:30, þar sem Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna rekstur og afkomu félagsins ásamt því að svara fyrirspurnum.

Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan útsendingu stendur á netfangið fjarfestakynning@hagar.is og verður þeim svarað eins og kostur er í lok fundar.

Fundinum verður streymt og er skráning á fundinn hér: https://www.hagar.is/skraning.

Kynningargögn verða aðgengileg á heimasíðu Haga, www.hagar.is, við upphaf fundar.


Nánari upplýsingar veita Finnur Oddsson, forstjóri félagsins (fo@hagar.is), og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs (geg@hagar.is), í síma 530-5500 eða tölvupósti.