Hagar hf.: Upplýsingar um birtingu uppgjörs 1. ársfjórðungs 2026/27
Hagar hf. birta uppgjör 1. ársfjórðungs, þ.e. fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2026, eftir lokun markaða, þriðjudaginn 30. júní nk.
Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn miðvikudaginn 1. júlí kl. 08:30 þar sem Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna rekstur og afkomu félagsins, ásamt því að svara fyrirspurnum.
Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan á útsendingu stendur á netfangið fjarfestakynning@hagar.is og verður þeim svarað eins og kostur er í lok fundar.
Fundinum verður streymt og er skráning á fundinn hér: https://www.hagar.is/skraning.
Kynningargögn verða aðgengileg á heimasíðu Haga, www.hagar.is, við upphaf fundar.