Afboðun kröfuhafafunda skuldabréfaeigenda
2024-01-24 11:40:00
HEIM070826, HEIM071248 og HEIM100646
Vísað er til tilkynninga A/F HEIM slhf. hjá Nasdaq Iceland kauphöll, dags. 10. janúar 2024, vegna boðunar kröfuhafafunda kröfuhafa í skuldabréfaflokkunum HEIM070826, HEIM071248 og HEIM100646 fimmtudaginn 25. janúar á skrifstofu LEX, Borgartúni 26, 105 Reykjavík, klukkan 10:00, 10:15 og 10:30.
Að ósk Heimstaden ehf. hafa kröfuhafafundirnir verið afboðaðir, en boðað verður til nýrra funda við fyrsta tækifæri.
Nánari upplýsingar veita:
Guðmundur Ingvi Sigurðsson – Lögmaður hjá LEX
sími: 590-2634.
Hildur Sveinsdóttir – Lögmaður hjá LEX
sími: 590-2600.
Reykjavík, 24. janúar 2024