Icelandair flutti 545 þúsund farþega í júní
Í júní 2026 flutti Icelandair 545 þúsund farþega, 1% færri en í júní á síðasta ári. Þar af voru 35% á leið til Íslands, 19% frá Íslandi, 41% voru tengifarþegar og 5% ferðuðust innanlands.
Farþegum frá Íslandi fjölgaði um 12% á milli ára og farþegum innanlands um 11%. Eftirspurn eftir ferðum til og frá Íslandi er áfram sterk sem endurspeglar núverandi áherslu félagsins á þessa markaði.
Sætanýting var 86,5% og stundvísi 84,9%. Seldum blokktímum í leiguflugi fjölgaði um 16% og fraktflutningar, mældir í tonnkílómetrum, jukust um 6%.
Kolefnislosun á hvern tonnkílómetra dróst saman um 4% á milli ára, sem skýrist af aukinni nýtingu sparneytnari flugvéla, áframhaldandi áherslur á umbætur í rekstri og hárri sætanýtingu.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:
„Júnímánuður markar upphaf háannar sumarsins hjá okkur, en við fluttum 545 þúsund farþega í mánuðinum og sætanýting var mjög góð. Eftirspurn eftir ferðum frá Íslandi var áfram sterk og fjölgaði farþegum á þeim markaði um 12% á milli ára. Þá jókst innanlandsflug einnig milli ára.
Við höldum áfram að leggja ríka áherslu á áreiðanlega þjónustu, samhliða áframhaldandi flotaendurnýjun og almennum rekstrarumbótum. Þetta skilaði sér meðal annars í 4% samdrætti á kolefnislosun á hvern tonnkílómetra og minni eldsneytisnotkun.“