Íslandsbanki hf.: Útboð á sértryggðum skuldabréfum 12. nóvember
Íslandsbanki verður með útboð á sértryggðu skuldabréfaflokkunum ISB CB 31 og ISB CBI 32 fimmtudaginn 12. nóvember 2026.
Fyrirkomulag útboðs verður með þeim hætti að öll samþykkt tilboð verða seld á hæstu samþykktu ávöxtunarkröfunni.
Bankinn áskilur sér rétt til að samþykkja eða hafna tilboðum að hluta til eða öllu leyti.
Áætlaður uppgjörsdagur viðskipta er 19. nóvember 2026.
Sértryggðu skuldabréfin hafa þegar verið gefin út undir útgáfuramma Íslandsbanka fyrir sértryggð skuldabréf. Grunnlýsingu má finna á vefsíðu fjárfestatengsla: Sértryggð skuldabréf grunnlýsing.
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið vbm@isb.is fyrir kl. 16:00 þann 12. nóvember 2026.