Marel: 3F 2024 Fjárfestakynning
2024-10-31 09:15:00
Marel hf. birti uppgjör þriðja ársfjórðungs eftir lokun markaða þann 30. október 2024.
Meðfylgjandi er fjárfestakynning sem farið verður yfir á afkomufundi með markaðsaðilum í dag, fimmtudaginn 31. október 2024 kl. 8:30. Þar munu Árni Sigurðsson forstjóri og Sebastiaan Boelen fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á þriðja ársfjórðungi.
Athugið að fundurinn verður eingöngu rafrænn. Fundinum verður streymt beint á Zoom og upptaka af fundinum verður aðgengileg á marel.com/ir eftir fundinn.