Måndag 2 November | 21:44:33 Europe / Stockholm
Est. tid*
2027-03-25 N/A Årsstämma
2027-02-25 N/A Bokslutskommuniké 2026
2026-10-22 - Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-08-25 - Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-04-30 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-03-27 - X-dag ordinarie utdelning NOVA 0.10 ISK
2026-03-26 - Årsstämma
2026-02-26 - Bokslutskommuniké 2025
2025-10-30 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-08-14 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-05-07 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-03-28 - X-dag ordinarie utdelning NOVA 0.08 ISK
2025-03-27 - Årsstämma
2025-02-27 - Bokslutskommuniké 2024
2024-10-31 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-08-22 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-05-06 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-28 - X-dag ordinarie utdelning NOVA 0.00 ISK
2024-03-21 - Årsstämma
2024-02-27 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-25 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-24 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-02 - Kvartalsrapport 2023-Q1

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Nova Klúbburinn hf. - Almennt tilboð til hluthafa um endurkaup eigin hluta og lok yfirstandandi lotu endurkaupaáætlunar

2026-11-02 16:38:38

Á aðalfundi Nova Klúbbsins hf. („Félagið“) þann 26. mars 2026 var stjórn Félagsins veitt heimild til að kaupa fyrir hönd Félagsins eigin hluti sem nema allt að 10% af hlutafé þess, í því skyni að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða gera hluthöfum almennt tilboð um kaup Félagsins á eigin hlutum, t.d. með útboðsfyrirkomulagi, enda sé jafnræðis hluthafa gætt við boð um þátttöku í slíkum viðskiptum.

Endurkaupaáætlun Félagsins var hrint í framkvæmd 29. júní 2026, sbr. tilkynningu til Kauphallar sama dag. Stjórn Félagsins hefur nú ákveðið að ljúka þeirri lotu endurkaupa sem staðið hefur yfir frá 29. júní 2026 og gera hluthöfum þess í stað almennt tilboð um kaup Félagsins á eigin hlutum á grundvelli framangreindrar heimildar.

Kaupin fara fram með öfugu útboðsfyrirkomulagi samkvæmt hollenskri aðferð. Arctica Finance hf. annast framkvæmd útboðsins fyrir hönd Félagsins.

Allir hluthafar sem skráðir eru í hlutaskrá Félagsins eftir lok viðskipta mánudaginn 2. nóvember 2026 geta gert sölutilboð í hluti sína fyrir milligöngu markaðsviðskipta Arctica Finance hf.

Hluthafar tilgreina í sölutilboðum sínum fjölda hluta og lágmarksverð á hlut sem þeir eru reiðubúnir að samþykkja. Tilboðum verður tekið frá lægsta verði þar til fyrirhuguðu umfangi kaupanna er náð, innan tilgreindra hámarka. Allir hlutir sem Félagið kaupir verða keyptir á sama verði, sem nemur hæsta verði samþykktra sölutilboða.

Heildarfjárhæð endurkaupanna mun að hámarki nema 400 milljónum króna.

Komi til þess að áhugi á þátttöku hluthafa Félagsins í viðskiptunum verði umfram þá hámarksfjárhæð sem tilgreind er hér að ofan mun Félagið kaupa í hlutfalli við eignarhlutfall þeirra hluthafa sem eiga samþykkt sölutilboð (e. pro rata).

Hluthafar sem vilja taka þátt í útboðinu skulu skila tilboðum til markaðsviðskipta Arctica Finance hf. á netfangið m@arctica.is. Sölutilboð hluthafa skulu hafa borist fyrir kl. 08:30 þriðjudaginn 3. nóvember 2026.

Niðurstöður útboðsins verða tilkynntar í fréttakerfi Nasdaq Iceland fyrir kl. 09:30 þriðjudaginn 3. nóvember 2026.

Uppgjörsdagur samþykktra sölutilboða er fimmtudagurinn 5. nóvember 2026.

Við dagsetningu þessarar tilkynningar á Félagið samtals 19.758.357 eigin hluti, eða um 0,573% af heildarhlutafé Félagsins, sem skiptist í 3.447.374.756 hluti.

Endurkaupin skulu fara fram í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ. á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995 og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veita:

Markaðsviðskipti Arctica Finance hf., m@arctica.is

Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins hf., fjarfestar@nova.is