ORIGO hf.: Viðskipti með eigin bréf – efndir kaupréttarsamninga
2023-03-20 23:10:00
Origo hefur í dag selt eigin bréf til að mæta skilyrðum um framkvæmd kaupréttarsamninga, vegna kauprétta sem veittir voru 26. maí 2021 og 26. maí 2022, í samræmi við kaupréttarkerfi sem samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 6. mars 2020 og starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á aðalfundi félagsins 3. mars 2022.
Heildarfjöldi nýttra kauprétta var 569.940 og fóru viðskiptin fram annars vegar á genginu 1,0 og hins vegar á genginu 24,3 kr. á hlut, sbr. tilkynningu frá 8. febrúar sl.
Origo á nú samtals 1,45% af heildarhlutafé félagsins sem samsvarar 2.026.295 hlutum.