Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í 27. viku 2026 keypti Síminn hf. 4.674.597 eigin hluti að kaupverði 55.977.704 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
| 29.6.2026 | 11:30 | 674.597 | 11,90 | 8.027.704 | 96.693.289 |
| 30.6.2026 | 15:23 | 1.000.000 | 11,95 | 11.950.000 | 97.693.289 |
| 1.7.2026 | 09:58 | 1.000.000 | 11,95 | 11.950.000 | 98.693.289 |
| 2.7.2026 | 11:38 | 1.000.000 | 12,00 | 12.000.000 | 99.693.289 |
| 3.7.2026 | 10:20 | 1.000.000 | 12,05 | 12.050.000 | 100.693.289 |
| 4.674.597 | 55.977.704 | 100.693.289 |
Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 15. maí 2026. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 500 milljónum króna. Endurkaupaáætlunin er í gildi í 18 mánuði frá síðasta aðalfundi, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2027, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma.
Síminn átti 96.018.692 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 100.693.289 eða sem nemur 4,20% af útgefnum hlutum í félaginu.
Síminn hefur keypt samtals 26.824.597 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,12% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 317.900.204 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.