Sjóvá: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 22 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 645.000 eigin hluti að kaupverði 27.183.000 kr. eins og nánar er greint frá hér:
| Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr) |
| 26.5.2026 | 15:04:28 | 200.000 | 42,60 | 8.520.000 |
| 27.5.2026 | 14:55:26 | 40.000 | 42,40 | 1.696.000 |
| 28.5.2026 | 14:52:33 | 200.000 | 42,20 | 8.440.000 |
| 29.5.2026 | 09:32:56 | 146.192 | 41,60 | 6.081.587 |
| 29.5.2026 | 09:33:56 | 53.808 | 41,60 | 2.238.413 |
| 29.5.2026 | 14:08:16 | 5.000 | 41,40 | 207.000 |
| 645.000 | 27.183.000 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 5.05.2026.
Sjóvá átti 797.694 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 1.442.694 eigin hluti eða sem nemur 0,12% af útgefnum hlutum í félaginu.
Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 14.000.000 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 1,21% af útgefnu hlutafé félagsins. Heildarkaupverð endurkaupanna verður þó ekki hærra en 500 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að endurkaupum samkvæmt áætluninni ljúki í síðasta lagi 12. september 2027 eða fyrr ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veitir:
Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is