Måndag 10 Augusti | 15:14:34 Europe / Stockholm
LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFinans
IndustriFörsäkring
Skagi är ett försäkringsbolag. Bolaget erbjuder ett varierande utbud av försäkringslösningar inriktat mot person-, hem - och reseförsäkring. Utöver erbjuds försäkring för fordon samt olika lösningar för företag. Kunderna återfinns huvudsakligen bland företagskunder inom varierande branscher, inkluderat industri, jordbruk, hälsa och sjukvård, samt finans. Störst verksamhet återfinns på den isländska marknaden.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

SKAGI: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – vika 25

2026-06-22 11:00:00

Í 25. viku 2026 keypti Skagi 3.300.000 eigin hluti að kaupverði alls kr. 60.240.000 eins og hér segir:

VikaDagsTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
Vika 2515.6.202610:12 800.000 18,00 14.400.000 60.682.688
Vika 2516.6.202614:40 900.000 18,40 16.560.000 61.582.688
Vika 2518.6.202613:50 800.000 18,30 14.640.000 62.382.688
Vika 2519.6.202614:00 800.000 18,30 14.640.000 63.182.688
Samtals  3.300.000 60.240.000 


Kaupin eru í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 1. júní, sbr. tilkynningu á markað 29. maí 2026. Áætlað er að kaupa allt að 30 milljón eigin hluti sem jafngildir um 1,55% af útgefnu hlutafé félagsins, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en samtals 500 milljónir króna að kaupverði. Endurkaup munu standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en við lokun markaða 15. júlí 2026.

Skagi hefur nú keypt samtals 12.850.000 eigin hluti í félaginu að kaupverði kr. 236.330.000 og á nú samtals  63.182.688 eigin hluti eða 3,26% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.940.311.770.

Framkvæmd endurkaupaáætlunar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021, sbr. 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 um markaðssvik, sbr. framselda reglugerð nr. 2016/1052 um tæknilega staðla og skilyrði endurkaupaáætlana.

Frekari upplýsingar veitir:
Álfhildur Pálsdóttir, með tölvupósti á fjarfestatengsl@skagi.is