Solid Clouds hf. - stjórn ákveður að sækja um afskráningu af First North
Stjórn Solid Clouds hf. hefur á fundi sínum í dag ákveðið að óska eftir því að hlutabréf félagsins verði tekin úr viðskiptum á Nasdaq First North Growth Market Iceland, með fyrirvara um samþykki hluthafafundar. Félagið mun samhliða birtingu tilkynningu þessarar senda umsókn Nasdaq Iceland hf. þessa efnis.
Ákvörðun stjórnar byggist einkum á því að viðskipti með hlutabréf félagsins hafa um langt skeið verið takmörkuð og seljanleiki þeirra lítill. Jafnframt telur stjórn að kostnaður og umsýsla vegna áframhaldandi skráningar hlutabréfanna á First North séu ekki lengur í eðlilegu samræmi við ávinning félagsins og hluthafa þess af skráningunni. Að mati stjórnar má nýta fjármunina betur til rekstrar og þróunar starfseminnar. Afskráning kann jafnframt að auka sveigjanleika við framtíðarfjármögnun, meðal annars gagnvart fjárfestum sem leggja áherslu á óskráð félög. Afskráning tryggir þó hvorki nýja fjármögnun né tiltekið verðmat hlutabréfanna.
Stjórn mun leggja tillögu um afskráninguna fyrir hluthafafund, sem boðaður verður sérstaklega. Hluthöfum verður gerð grein fyrir forsendum tillögunnar og áhrifum hennar. Afskráning kemur ekki til framkvæmda nema samþykki hluthafafundar og Nasdaq Iceland hf. liggi fyrir. Verði tillagan felld á hluthafafundi verður umsóknin afturkölluð.
Félagið vekur athygli á að við afskráningu verða hlutabréfin ekki lengur í viðskiptum á First North og seljanleiki þeirra getur minnkað enn frekar. Jafnframt munu sérstakar upplýsingaskyldur samkvæmt reglum First North ekki lengur gilda með sama hætti. Áfram verður sinnt þeim skyldum sem leiða af lögum og samþykktum félagsins. Afskráningin sjálf felur hvorki í sér innlausn hlutabréfa, breytingu á eignarhlutdeild hluthafa né nýjar takmarkanir á framsali þeirra.
Nasdaq Iceland hf. tekur ákvörðun um umsóknina og tímasetningu afskráningar. Síðasti viðskiptadagur hefur ekki verið ákveðinn. Félagið mun birta upplýsingar um niðurstöðu hluthafafundar, afgreiðslu Nasdaq og frekara fyrirkomulag þegar þær liggja fyrir. Þar til afskráning tekur gildi verða hlutabréfin áfram tekin til viðskipta á First North og félagið mun sinna viðeigandi upplýsingaskyldum.
Þessi tilkynning er birt af Solid Clouds hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, varðandi mögulega afskráningu félagsins sem lýst er að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Agli Sigurjónssyni, framkvæmdastjóra Solid Clouds hf., í samræmi við upplýsingaskyldu félagsins samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.