Torsdag 27 Augusti | 08:00:06 Europe / Stockholm
Est. tid*
2027-02-18 N/A Bokslutskommuniké 2026
2026-11-05 19:40 Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-08-27 19:40 Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-05-07 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-03-28 - X-dag ordinarie utdelning SYN 0.00 ISK
2026-02-25 - Bokslutskommuniké 2025
2025-11-04 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-08-24 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-05-06 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-03-28 - X-dag ordinarie utdelning SYN 0.00 ISK
2024-03-28 - X-dag ordinarie utdelning SYN 0.00 ISK
2023-05-10 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-17 - Årsstämma
2023-02-15 - Bokslutskommuniké 2022
2022-11-02 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-08-30 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-11 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-18 - Årsstämma
2022-02-16 - Bokslutskommuniké 2021
2021-11-03 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-09-01 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-12 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-02-24 - Bokslutskommuniké 2020
2020-11-04 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-08-26 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-05-13 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-03-20 - Årsstämma
2020-02-26 - Bokslutskommuniké 2019
2019-10-30 - Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-21 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-05-09 - Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-25 - X-dag ordinarie utdelning SYN 0.00 ISK
2019-03-22 - Årsstämma
2019-02-27 - Bokslutskommuniké 2018
LandIsland
ListaSmall Cap Iceland
SektorTelekom & Media
IndustriTelekommunikation och -tjänster
Sýn är ett telekombolag. Idag erbjuder bolaget ett brett utbud av mobila tjänster, abonnemang, fast- och mobilt bredband, övriga IP-lösningar, samt tillhörande support och tjänster. En stor del av bolagets tjänster nås digitalt och kunderna återfinns både bland privat – och företagskunder, med störst verksamhet på den isländska marknaden. Bolaget kom till vid en sammanslagning av Vodafone Island och bolagen som gick under 365 koncernen.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Sýn hf.: Afkoma Sýnar hf. á öðrum ársfjórðungi ársins 2026.

2026-08-26 19:38:42

Áframhaldandi vöxtur og lykilmælikvarðar styrkjast

Sýn hf. birtir í dag uppgjör fyrir annan ársfjórðung og fyrri helming ársins 2026 sem endurspeglar áframhaldandi  vöxt í kjarnastarfsemi og bætta rekstrarafkomu. Heildartekjur á öðrum ársfjórðungi námu 5.559 m.kr. og jukust um 2,8% milli ára. Leiðrétt fyrir áhrifum af Sendafélaginu nam tekjuvöxturinn 5,5%. Vöxtur á fjórðungnum var einkum borinn uppi af kjarnastarfsemi félagsins. Tekjur af fjölmiðlun jukust um 12,3% milli ára, auglýsingasala um 9,1%, farsímatekjur um 7,0% og internettekjur um 2,1%.

Samhliða tekjuvexti hefur áframhaldandi kostnaðaraðhald og aukin skilvirkni í rekstri skilað sér í lægri kostnaðargrunni og sterkari lykilmælikvörðum. Heildarrekstrarkostnaður lækkar um 2,3% milli ára, þrátt fyrir 93 m.kr. kostnaðarauka vegna breytts rekstrarfyrirkomulags á Sendafélaginu. Laun og launatengd gjöld lækka um 3,1%, þrátt fyrir kjarasamningsbundnar hækkanir, og annar rekstrarkostnaður lækkar um 8,4% í krefjandi efnahagsumhverfi.

EBITDAaL nam 995 m.kr. á öðrum ársfjórðungi og hækkar um 39,0% frá sama tímabili í fyrra. Fjárfestingar námu 691 m.kr. og EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum nam 305 m.kr., samanborið við 92 m.kr. á öðrum ársfjórðungi 2025.

Handbært fé frá rekstri á 2F 2026 nam 871 m.kr. samanborið við 481 m.kr. á 2F 2025 og hækkar um 390 m.kr. milli ára.

Samningaviðræðum við Ása hf. um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar lauk í ágúst án þess að endanlegur kaupsamningur væri undirritaður. Vef- og útvarpsmiðlar félagsins verða því áfram hluti af rekstri Sýnar. Um er að ræða öflugar einingar í góðum rekstri sem búa yfir miklum möguleikum til áframhaldandi vaxtar og verðmætasköpunar. Þær munu því áfram styðja við kjarnastarfsemi félagsins. Niðurstaðan hefur engin áhrif á útgefna afkomuspá félagsins fyrir árið 2026.

Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri:

Fyrri árshelmingur 2026 staðfestir áframhaldandi jákvæðan viðsnúning í rekstri Sýnar. EBITDAaL jókst um 42% á milli ára og nam 1.837 m.kr. Lykilmælikvarði félagsins, EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum, nam 310 m.kr. samanborið við 192 m.kr. á sama tímabili í fyrra, þrátt fyrir umtalsvert meiri fjárfestingar í sýningarréttum.

Kjarnastarfsemin heldur áfram að vaxa. Leiðrétt fyrir áhrifum af Sendafélaginu jukust tekjur um 6% á fyrri árshelmingi, þar sem fjölmiðlun, auglýsingasala og farsími leiddu vöxtinn. Fjölmiðlastarfsemin vex um 13% á milli ára, en hún stafar aðallega af Enska boltanum og fjölgun sjónvarpsáskrifta. Afskriftir sýningarrétta setja mark sitt á afkomu eftir skatta og skýra að tap annars ársfjórðungs jókst á milli ára, en undirliggjandi rekstur heldur áfram að styrkjast og tap fyrri árshelmings dregst saman frá sama tíma í fyrra.

Á sama tíma höldum við áfram að einfalda reksturinn. Launakostnaður lækkar um 4,6% á milli ára og stöðugildi voru 367 í lok tímabilsins samanborið við 414 fyrir ári. Fjárhagsstaðan styrkist jafnt og þétt; handbært fé frá rekstri jókst um 45% á milli ára og hreinar vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga hafa lækkað um rúman milljarð frá áramótum. Félagið hefur því aukið svigrúm til að fjárfesta í kjarnastarfseminni.“

Fjárhagsdagatal:

  • Afkoma 3F 2026                                                                                                              5. nóvember 2026
  • Afkoma 4F og ársuppgjör 2026                                                                                 18. febrúar 2027
  • Aðalfundur 2027                                                                                                             19. mars 2027


Frekari upplýsingar 

  • Opinn kynningarfundur vegna uppgjörsins verður haldinn fimmtudaginn 27. ágúst kl. 8:30 í húsnæði félagsins að Suðurlandsbraut 8, Reykjavík. Vakin er athygli á að ekki verður hægt að fylgjast með fundinum í beinu streymi.
  • Tekið er á móti fyrirspurnum í gegnum netfangið fjarfestatengsl@syn.is