Tisdag 8 September | 17:08:06 Europe / Stockholm
Est. tid*
2027-02-18 N/A Bokslutskommuniké 2026
2026-11-05 19:40 Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-08-27 - Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-05-07 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-03-28 - X-dag ordinarie utdelning SYN 0.00 ISK
2026-02-25 - Bokslutskommuniké 2025
2025-11-04 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-08-24 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-05-06 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-03-28 - X-dag ordinarie utdelning SYN 0.00 ISK
2024-03-28 - X-dag ordinarie utdelning SYN 0.00 ISK
2023-05-10 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-17 - Årsstämma
2023-02-15 - Bokslutskommuniké 2022
2022-11-02 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-08-30 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-11 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-18 - Årsstämma
2022-02-16 - Bokslutskommuniké 2021
2021-11-03 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-09-01 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-12 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-02-24 - Bokslutskommuniké 2020
2020-11-04 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-08-26 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-05-13 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-03-20 - Årsstämma
2020-02-26 - Bokslutskommuniké 2019
2019-10-30 - Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-21 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-05-09 - Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-25 - X-dag ordinarie utdelning SYN 0.00 ISK
2019-03-22 - Årsstämma
2019-02-27 - Bokslutskommuniké 2018
LandIsland
ListaSmall Cap Iceland
SektorTelekom & Media
IndustriTelekommunikation och -tjänster
Sýn är ett telekombolag. Idag erbjuder bolaget ett brett utbud av mobila tjänster, abonnemang, fast- och mobilt bredband, övriga IP-lösningar, samt tillhörande support och tjänster. En stor del av bolagets tjänster nås digitalt och kunderna återfinns både bland privat – och företagskunder, med störst verksamhet på den isländska marknaden. Bolaget kom till vid en sammanslagning av Vodafone Island och bolagen som gick under 365 koncernen.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Sýn hf.: Sýn hættir útsendingu sjónvarpsfrétta

2026-08-31 10:54:26

Sýn hefur ákveðið að hætta framleiðslu og útsendingu sjónvarpsfrétta frá og með 1. september 2026. Síðasti sjónvarpsfréttatíminn verður sendur út í kvöld á SÝN. Jafnframt verður hætt framleiðslu og útsendingu á Íslandi í dag. 

Ákvörðunin er tekin í ljósi breyttra neysluvenja almennings þar sem sífellt fleiri sækja sér fréttir og fréttatengt efni á stafrænum miðlum. Sýn mun því beina auknum krafti að fréttaþjónustu á Vísi og Bylgjunni og leggja áherslu á að miðla fréttum þar sem eftirspurn eftir fréttaefni er mikil. 

Fréttastofa Sýnar mun áfram sinna fréttaþjónustu af fagmennsku og þróa miðlun frétta í takt við breyttar neysluvenjur landsmanna. Markmiðið er að styrkja fréttaþjónustu Sýnar á Vísi og Bylgjunni og tryggja um leið grundvöll fyrir sjálfbærum rekstri. 

Vísir er einn vinsælasti innlendi vefmiðill landsins og um 170.000 manns á aldrinum 12–80 ára hlusta á útvarpsstöðvar Sýnar í hverri viku.* 

Með þessu lýkur 40 ára samfelldri sögu sjónvarpsfrétta hjá félaginu. Miklar breytingar hafa orðið á íslenskum fjölmiðlamarkaði undanfarin ár. Fréttaneysla hefur færst í auknum mæli frá línulegu sjónvarpi yfir á stafræna miðla og samhliða því hefur tekjugrunnur innlendra fjölmiðla veikst. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands rann 51% auglýsingafjár á Íslandi til alþjóðlegra tæknirisa árið 2024. Þetta hefur gert samkeppni einkarekinna miðla við Ríkisútvarpið á auglýsingamarkaði að enn meiri áskorun. Tillögur stjórnvalda hafa ekki nægjanleg áhrif á rekstur sjónvarpsfrétta þannig að þær geti breytt niðurstöðunni. 

Sýn færir því starfsfólki sem verður fyrir áhrifum af þessum breytingum innilegar þakkir fyrir ómetanlegt, faglegt og mikilvægt framlag í þágu félagsins og íslenskrar fjölmiðlunar.  

Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar: 

„Sjónvarpsfréttir hafa verið mikilvægur hluti af starfsemi Sýnar og forvera félagsins í fjóra áratugi. Þar hefur fjölbreyttur hópur framúrskarandi fréttamanna, framleiðslufólks og annars starfsfólks unnið mikilvægt starf í þágu almennings og íslensks samfélags. Við erum afar stolt af þeirri sögu og þakklát öllum þeim sem hafa lagt hönd á plóg. 

Ákvörðunin er erfið, ekki síst vegna áhrifanna á starfsfólkið okkar, en hún er nauðsynleg. Rekstur sjónvarpsfrétta hefur verið ósjálfbær um nokkurt skeið og við berum ábyrgð á því að bregðast við þeirri stöðu. Þótt þessum kafla í sögu Sýnar ljúki er framlag fréttastofunnar til íslenskrar fjölmiðlasögu óumdeilt og mun standa eftir. Sýn mun hér eftir sem hingað til kappkosta að miðla vandaðri fréttaumfjöllun á einum sterkustu miðlum landsins, Vísi og á Bylgjunni. Þar liggja spennandi tækifæri til að gera enn betur.“ 

Nánari upplýsingar veitir Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar, á netfanginu herdis@syn.is


* Netmiðlamæling Maskínu (2. ársfj. 2026) og rafrænar ljósvakamælingar Gallup (1.–2. ársfj. 2026)