17:43:56 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Kalender

2024-10-31 Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-08-15 Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-05-02 Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-04-11 Årsstämma 2024
2024-02-15 Bokslutskommuniké 2023
2023-11-15 Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-17 Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-04-27 Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-02-28 Bokslutskommuniké 2022
2022-10-27 Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-08-25 Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-05 Kvartalsrapport 2022-Q1
2021-04-29 Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-25 Årsstämma 2021
2021-02-11 Bokslutskommuniké 2020
2020-10-28 Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-08-27 Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-06-10 Årsstämma 2020
2020-04-29 Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-03-10 Bokslutskommuniké 2019
2019-10-31 Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-28 Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-05-08 Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-04-11 Ordinarie utdelning EIK 0.29 ISK
2019-04-10 Årsstämma 2019
2019-03-07 Bokslutskommuniké 2018
2016-04-13 Ordinarie utdelning EIK 0.24 ISK

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFastigheter
IndustriFörvaltning
Eik fasteignafélag är ett fastighetsbolag. Bolaget förvärvar, utvecklar och hyr ut fastigheter, med störst inriktning mot leasing och uthyrning av kommersiella fastigheter. Fastighetsbeståndet består av varierande typer av lokaler, anpassat för kontor, lager och butikskedjor, med störst verksamhet inom den isländska marknaden. Kunderna återfinns huvudsakligen bland små – och medelstora företag. Utöver uthyrning bistår bolaget med support och fastighetsunderhåll.
2022-05-05 17:34:24
  • Rekstrartekjur námu 2.284 m.kr.
  • Virðisrýrnun viðskiptakrafna nam 18 m.kr.
  • Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 1.475 m.kr.
  • Heildarhagnaður nam 2.216 m.kr.
  • Handbært fé frá rekstri nam 936 m.kr.
  • Bókfært virði fjárfestingareigna nam 109.448 m.kr.  
  • Bókfært virði eigna til eigin nota nam 4.157 m.kr. í lok tímabilsins.
  • Matsbreyting fjárfestingareigna var 2.938 m.kr.
  • Handbært fé nam 3.091 m.kr.
  • Vaxtaberandi skuldir námu 65.535 m.kr. í lok tímabilsins.
  • Eiginfjárhlutfall nam 33,5%.
  • Hagnaður á hlut var 0,65 kr.
  • Virðisútleiguhlutfall var 94,2% í lok tímabilsins
  • Vegnir verðtryggðir vextir námu 3,03% í lok tímabilsins.
  • Vegnir óverðtryggðir vextir námu 4,93% í lok tímabilsins.

Árshlutareikningur Eikar fasteignafélags hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2022 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins þann 5. maí 2022.

Meðfylgjandi er árshlutaskýrsla sem inniheldur árshlutareikning vegna fyrstu þriggja mánaða ársins ásamt ítarlegri upplýsingum um rekstur félagsins en fram koma í tilkynningunni.

Rekstur félagsins

Rekstur félagsins gekk vel á fyrstu þremur mánuðum ársins 2022 og var afkoman í takt við áætlanir stjórnenda félagsins. Rekstrartekjur félagsins á fyrstu þremur mánuðum ársins 2022 námu 2.284 m.kr. Þar af voru leigutekjur 1.990 m.kr. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 1.475 m.kr. Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 2.772 m.kr. og heildarhagnaður samstæðunnar á fyrstu þremur mánuðum ársins 2022 nam 2.216 m.kr.

NOI hlutfall (þ.e. rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir sem hlutfall af leigutekjum) nam 73,5% á fyrstu þremur mánuðum ársins 2022 samanborið við 67,8% fyrir sama tímabil 2021.

Fjárfestingareignir félagsins eru metnar á gangvirði í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) og stuðst er m.a. við núvirt framtíðarsjóðstreymi einstakra eigna. Breytingar á gangvirði eru færðar undir matsbreytingu fjárfestingareigna sem voru um 2.938 m.kr. á fyrstu þremur mánuðum ársins.

Efnahagur félagsins

Heildareignir félagsins námu 118.657 m.kr. þann 31. mars 2022. Þar af eru fjárfestingareignir að virði 109.448 m.kr. sem skiptast í fjárfestingareignir í útleigu að fjárhæð 105.823 m.kr., leigueignir 2.487 m.kr., fjárfestingareignir í þróun 699 m.kr., byggingarréttir og lóðir 448 m.kr. og fyrirframgreidd gatnagerðargjöld að fjárhæð 13 m.kr. Eignir til eigin nota námu 4.157 m.kr. og fasteignir í þróun 666 m.kr. Eigið fé félagsins nam 39.699 m.kr. í lok mars 2022 og var eiginfjárhlutfall 33,5%. Á aðalfundi félagsins þann 5. apríl 2022 var samþykkt að greiða út arð til hluthafa vegna rekstrarársins 2021 að fjárhæð 1.740 m.kr. sem var greiddur þann 28. apríl 2022. Staða eiginfjár tekur ekki tillit til þeirra skuldbindinga.

Heildarskuldir félagsins námu 78.957 m.kr. þann 31. mars 2022, þar af voru vaxtaberandi skuldir 65.535 m.kr. og tekjuskattsskuldbinding 9.236 m.kr. 

Virðisútleiguhlutfall

Virðisútleiguhlutfall félagsins stóð í stað frá áramótum og var 94,2% í lok fyrsta ársfjórðungs.

Horfur

Verðbólga hefur verið heldur hærri en búist var við. Almennt séð hefur verðbólga jákvæð áhrif á EBITDA félagsins þar sem 98% af leigutekjum eru tengdar vísitölu neysluverðs eða vísitölu neysluverðs til verðtryggingar. Að teknu tilliti til verðbólgu eru horfur fyrir árið óbreyttar.

Áhrif COVID-19

Áhrif COVID-19 á rekstur félagsins fara hratt dvínandi. Félagið telur að áhrif faraldursins hafi verið neikvæð um 35 - 40 m.kr. á EBITDA á fyrsta ársfjórðungi ársins. Félagið væntir þess að áhrifa faraldursins á rekstur félagsins gæti áfram á fyrri helmingi þessa árs en þau verði lítil sem engin á seinni helmingi ársins m.v. óbreytta stöðu faraldursins. Þó á eftir að gera upp útistandandi kröfur sem greiðslufrestur var veittur á vegna faraldursins, en óljóst er hvenær það mun verða.

Eignasafn félagsins

Félagið fékk hluta af fasteigninni við Sóltún 24 afhenta í febrúar en eignin deilir lóð og bílakjallara með fasteign félagsins við Sóltún 26.

Eins og fram kom í ársreikningi félagsins fyrir árið 2021 þá hefur leigutaki félagsins, sem leigir Höfðasel 2 og 4 á Akranesi, nýtt kauprétt sinn á eignunum og verða þær afhentar þann 30. september 2022. Söluverð er tengt vísitölu neysluverðs til verðtryggingar og verður bókfærður söluhagnaður í uppgjöri þriðja ársfjórðungs sem nemur mun á bókfærðu verði og söluverði. M.v. vísitölu neysluverðs til verðtryggingar í apríl 2022 nemur munurinn 268 m.kr.

Fasteignir innan samstæðunnar eru yfir 110 talsins og telja tæplega 314 þúsund útleigufermetra í rúmlega 600 leigueiningum. Heildarfjöldi leigutaka er yfir 400. Helstu fasteignir félagsins á höfuðborgarsvæðinu eru Borgartún 21 og 21a, Borgartún 26, Suðurlandsbraut 8 og 10, Mýrargata 2-16, Pósthússtræti 2 (Hótel 1919), Smáratorg 3 (Turninn), Smáratorg 1, Álfheimar 74 (Nýi Glæsibær), Grjótháls 1-3 og Austurstræti 5, 6, 7 og 17. Helsta fasteign félagsins utan höfuðborgarsvæðisins er Glerártorg. Stærstu leigutakar félagsins eru Húsasmiðjan, Flugleiðahótel, Ríkiseignir, Landsbankinn, Sýn, Össur, Míla, Deloitte, Síminn og VÍS.

Stærsti hluti fasteignasafns félagsins er skrifstofuhúsnæði eða 42%. Næst koma verslunarhúsnæði 24%, lagerhúsnæði 13%, hótel 9%, heilsutengt húsnæði 7% og veitinga- og skemmtistaðir 3%. Um 92% fasteigna félagsins eru á höfuðborgarsvæðinu, þar af 38% á fjármála- og viðskiptasvæði Reykjavíkur (aðallega innan póstnúmera 105 og 108), 17% í miðbæ Reykjavíkur og 19% í Smáranum - Mjódd. 8% eignasafnsins er á landsbyggðinni, þar af tæplega 7% á Akureyri.

Rafrænn kynningarfundur
Rafrænn kynningarfundur verður haldinn föstudaginn 6. maí 2022 klukkan 8:30. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu.

Skráning á fundinn fer fram hér: https://us02web.zoom.us/webinar/register/WN_cp0pkbNYTuCm2XL5bJh4yA

Eftir skráningu fá þátttakendur tölvupóst með nánari upplýsingum.

Fjárhagsdagatal 2022

Stefnt er að birtingu árshluta- og ársuppgjöra á neðangreindum dagsetningum:

Árshlutauppgjör 2. ársfjórðungs 2022                                   25. ágúst 2022
Árshlutauppgjör 3. ársfjórðungs 2022                                   27. október 2022
Ársuppgjör 2022                                                                    16. febrúar 2023

Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaða.

Nánari upplýsingar veita:

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, gardar@eik.is, s. 590-2200
Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is, s. 820-8980