Bifogade filer
Kurs & Likviditet
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Fastigheter |
Industri | Förvaltning |
Tilnefningarnefnd Eikar fasteignafélags hf. auglýsir eftir tillögum hluthafa að frambjóðendum til stjórnarkjörs sem og framboðum annarra til stjórnar félagsins, vegna aðalfundar hluthafa sem stendur til að halda 31. mars 2022.
Tilkynning um framboð skal vera á sérstöku eyðublaði sem tilnefningarnefnd félagsins lætur í té og unnt er að nálgast á heimasíðu félagsins https://www.eik.is/hluthafar/. Tillögur hluthafa og framboð skulu send á netfangið tilnefningarnefnd@eik.is eða í lokuðu umslagi á skrifstofu félagsins, eigi síðar en 4. febrúar 2022.
Rökstudd tillaga nefndarinnar skal kynnt með fundarboði aðalfundar og vera aðgengileg hluthöfum á heimasíðu félagsins a.m.k. þremur vikum fyrir aðalfund. Starfsemi tilnefningarnefndar takmarkar ekki heimildir til þess að skila inn framboðum til stjórnar minnst sjö sólarhringum fyrir aðalfund í samræmi við 3. mgr. 20. gr. samþykkta félagsins.