Bifogade filer
Kurs & Likviditet
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Fastigheter |
Industri | Förvaltning |
Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. verður haldinn rafrænt kl. 16:00 þriðjudaginn 5. apríl 2022 og í salnum Gullteig A á Grand Hótel Reykjavík.
Framboðsfrestur til stjórnar félagsins rann út 29. mars kl. 16:00. Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins:
- Bjarni Kristján Þorvarðarson
- Eyjólfur Árni Rafnsson
- Guðrún Bergsteinsdóttir
- Hersir Sigurgeirsson
- Ragnheiður Harðar Harðardóttir
Stjórn hefur metið öll framboð til stjórnar gild, sbr. 63. gr. a. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórnin skipuð fimm mönnum.
Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að taka þátt í fundinum, hvort sem er rafrænt eða í eigin persónu, eru minntir á að skrá sig tímanlega á heimasíðunni www.lumiagm.com/meeting/eik og ekki seinna en kl. 16:00 mánudaginn 4. apríl 2022.
Nánari upplýsingar um frambjóðendur eru í viðhengi auk skýrslu tilnefningarnefndar og viðauka við hana.