Kurs & Likviditet
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Fastigheter |
Industri | Förvaltning |
Eik fasteignafélag hf. og Klöpp-eignarhaldsfélag ehf. gerðu í dag viðauka við samkomulag um helstu skilmála kaupsamnings um allt útgefið hlutafé í Lambhagavegi 23 ehf. og Laufskálum fasteignafélagi ehf. sem tilkynnt var um 16. júní 2022.
Samkomulagið er enn bundið sömu fyrirvörum, en með viðaukanum er framlengdur til 31. ágúst 2022 einkaréttur kaupanda til að vinna með seljanda og ráðgjöfum hans við að ná endanlegu samkomulagi um viðskiptin og klára kaupsamningsgerð.
Frekari grein verður gerð fyrir viðskiptunum á síðari stigum ef viðeigandi framgangur verður í viðræðum og fyrirhugaðri vinnu sem tengist mögulegum viðskiptum. Ráðgjafi félagsins er Arctica Finance hf. en ráðgjafi seljanda er Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka.
Nánari upplýsingar veitir:
Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, gardar@eik.is, 590-2200 / 861-3027.