Kurs & Likviditet
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Fastigheter |
Industri | Förvaltning |
Í fyrri tilkynningu félagsins kom fram að félagið myndi birta helstu tölur úr uppgjöri ársins 2021 þegar þær lægju fyrir.
Í drögum að uppgjöri ársins kemur fram að tekjur ársins hafi numið 8.673 m.kr. og EBITDA 5.645 m.kr. Matsbreyting fjárfestingareigna nam 5.215 m.kr., söluhagnaður fjárfestingareigna 88 m.kr. og heildarhagnaður félagsins 4.935 m.kr.
Þá var handbært fé frá rekstri 3.492 m.kr. samkvæmt drögum en arðgreiðslustefna stjórnar gerir ráð fyrir því að allt að 50% af handbæru fé frá rekstri verði greitt í arð til hluthafa.
Drög að uppgjöri eru í takt við áætlanir félagsins.
Félagið vinnur enn að uppgjöri ársins 2021 en uppgjörið og áætlun 2022 verða birt þann 17. febrúar 2022. Framangreindar upplýsingar geta breyst við endurskoðun fram að birtingu ársuppgjörs.