Kurs & Likviditet
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Fastigheter |
Industri | Förvaltning |
Eik fasteignafélag hf. hefur birt lýsingar EIK 100327 og EIK 141233. Lýsingarnar samanstanda hvor um sig af tveimur aðskildum skjölum, útgefandalýsingu dagsettri 18. maí 2021 og verðbréfalýsingu dagsettri 24. september 2021. Lýsingarnar eru birtar í tengslum við umsókn útgefanda um að skuldabréf í flokknum EIK 100327 og EIK 141233 verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. Lýsingarnar hafa verið staðfestar af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.
Íslandsbanki hf. hafði umsjón með því ferli að fá lýsingarnar staðfestar hjá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands og töku skuldabréfaflokkanna til viðskipta. Verðbréfalýsingarnar eru hér meðfylgjandi og má einnig finna á heimasíðu útgefanda, www.eik.is/fjarfestar. Gögnin má nálgast á skrifstofu félagsins í Sóltúni 26 í Reykjavík. Skuldabréfaflokkarnir verða teknir til viðskipta þann 28. september 2021.
Nánari upplýsingar veitir Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, á netfanginu lydur@eik.is eða í síma 820-8980.