Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Fastigheter |
Industri | Förvaltning |
2020-10-08 18:20:47
Eik fasteignafélag hf. hefur nú lokið stækkun á skuldabréfaflokknum EIK 050726. Skuldabréfin eru með lokagjalddaga þann 5. júlí 2026 og bera fasta 2,712% verðtryggða vexti.
Seld voru skuldabréf að nafnverði 1.700 milljónir króna á ávöxtunarkröfunni 2,25%. Heildarstærð flokksins verður því í kjölfar stækkunarinnar 5.880 milljónir króna.
Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna þann 15. október 2020 og verður óskað eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta í framhaldinu samhliða birtingu á nýrri viðbótarlýsingu vegna þessarar stækkunar.
Íslandsbanki hafði umsjón með viðskiptunum og stækkun skuldabréfaflokksins.
Nánari upplýsingar veitir:
Lýður Heiðar Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is, s: 590-2209 / 820-8980