Kurs & Likviditet
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Small Cap Iceland |
Sektor | Fastigheter |
Industri | Förvaltning |
FUNDARBOÐ
Aðalfundur Kaldalóns hf., kt. 490617-1320, verður haldinn mánudaginn 19. apríl 2021, kl. 16:00, að Katrínartún 2, 105 Reykjavík, 9. hæð.
Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi liðir:
- Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár.
- Ársreikningur félagsins fyrir árið 2020 og ákvörðun um meðferð hagnaðar eða taps félagsins á reikningsárinu.
- Kosning og skipun stjórnar og varastjórnar.
- Kjör endurskoðanda félagsins.
- Starfskjarastefna félagsins.
- Ákvörðun þóknunar til stjórnarmanna og endurskoðanda.
- Samantekt stjórnar um hlutafjáreign og samstæðutengsl.
- Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.
***
Dagskrá, endanlegar tillögur, starfskjarastefna, ársreikningur félagsins og önnur fundargögn liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis fram að aðalfundi.
Óski hluthafi eftir að fá ákveðið mál tekið fyrir á fundinum skal hann koma slíkri ósk á skriflega á framfæri við stjórn félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir boðaðan fundartíma.
Tilhögun fundarins verður í samræmi við þær sóttvarnarreglur sem í gildi verða á fundardegi. Því getur þurft að takmarka aðgang að fundarsal og bjóða þess í stað upp á steymi, eða með öðrum hætti í samræmi við reglur hlutafélagalaga um hluthafafundi. Verða breytingar þar að lútandi tilkynntar í fréttakerfi kauphallar eigi síðar en þremur sólarhringum fyrir fundinn.
Reykjavík, 31. mars 2021
F.h. stjórnar Kaldalóns hf.
Þórarinn Arnar Sævarsson
stjórnarformaður