01:24:11 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Kalender

2023-11-07 Split KALD 10:1
2021-03-31 Årsstämma 2021
2021-03-19 Bokslutskommuniké 2020

Beskrivning

LandIsland
ListaSmall Cap Iceland
SektorFastigheter
IndustriFörvaltning
Kaldalón är ett isländskt fastighetsbolag. Bolagets specialistkompetens återfinns inom fastighetsutveckling, med störst fokus mot förvärv och investeringar i bostadsfastigheter. Störst verksamhet återfinns inom den europeiska marknaden, med privata kunder som dominerande kundbas. En del av projekten utvecklas med bolagets samarbetspartners. Huvudkontoret är beläget i Reykjavik.
2021-05-17 00:54:51

Sala á fasteignaverkefni í Vogabyggð og kaup á tekjuberandi fasteignum

Kaldalón hf. hefur náð samkomulagi um sölu fasteignaverkefnis dótturfélags síns, U 14-20 ehf., í Vogabyggð. Kaupandi er Reir ehf. Söluandvirði í viðskiptunum að frádregnum skuldum er um kr. 2.760 milljónir.

Samhliða sölunni á framangreindum eignum í Vogabyggð kaupir dótturfélag Kaldalóns félagið Lantan ehf. sem á fasteignirnar að Laugavegi 32-36 sem m.a. hýsa starfsemi Sand Hótels, og félagið VMT ehf. sem á fasteignir að Vegamótastíg 7 sem hýsir starfsemi Room with a View Hotel, ásamt gildandi leigusamningum.

Langtímaleigusamningar eru í gildi um eignirnar og nema árstekjur samkvæmt þeim um kr. 485 milljónum. Tímabundið samkomulag er í gildi við leigjendur hótelanna um skertar greiðslur vegna COVID-19 faraldursins. Áætlanir Kaldalóns gera ráð fyrir að hótelin verði í fullum rekstri frá árslokum 2022.

Heildarverð hinna keyptu félaga Lantan ehf. og VMT ehf. er kr. 5.320 milljónir. Yfirteknar skuldir nema kr. 3.273 milljónum.

Áætlað er að bókfærður hagnaður Kaldalóns fyrir skatta af viðskiptunum verði í kringum kr. 600 milljónir.

Í ljósi þeirra breytinga sem viðskiptin hafa á rekstur og efnahag Kaldalóns hefur stjórn félagsins ákveðið að afturkalla núgildandi afkomuspá félagsins sem birt var 19. mars síðastliðinn. Ný afkomuspá verður birt síðar.

Viðskiptin eru háð endanlegri kaupsamningsgerð, samþykki stjórna kaupanda og seljenda og samþykki lánveitenda. Stefnt er að því að kaupin komi til framkvæmda eigi síðar en 30. júní 2021.

Ráðgjafasamningur við Arion banka og vænt skráning á aðallista

Samhliða ofangreindum viðskiptum hefur Kaldalón gert ráðgjafasamning við Arion banka um ráðgjöf í tengslum við frekari kaup félagsins á tekjuberandi fasteignum. Samningurinn felur meðal annars í sér aðstoð Arion banka við fjármögnun félagsins, bæði hvað varðar eiginfjár- og lánsfjármögnun. Jafnframt hafa bankinn og Kaldalón gert með sér viljayfirlýsingu, sem háð er nánari skilyrðum af hálfu bankans, um sölutryggingu bankans á allt að fimm milljörðum króna í nýju hlutafé í tengslum við fyrirhugaða skráningu félagsins á aðallista kauphallar sem fyrirhuguð er á árinu 2022.

Hvort tveggja, framangreind viðskipti og undirritun ráðgjafasamnings við Arion eru liður í þeirri stefnu Kaldalóns að auka vægi tekjuberandi eigna í starfsemi félagsins, en viðhalda á sama tíma sterkum þróunararmi. Áhersla verður lögð á stærri eignir með trausta tekjumöguleika til langs tíma, auk eigna sem tækifæri eru til að þróa og nýta þannig sérþekkingu Kaldalóns á þróunar- og uppbyggingarverkefnum. Telur stjórn félagsins að nú sé lag að nýta sér markaðstæður til kaupa á tekjuberandi eignum.

Breytingar á rekstrarfyrirkomulagi

Í ljósi ofangreindra breytinga hafa Kaldalón og GAMMA Capital Management hf. náð samkomulagi um endanleg slit samstarfs samkvæmt eignastýringarsamningi félagsins, sem var upphaflega hjá Kviku en færðist síðar yfir til GAMMA Capital Management hf. Þeim verkefnum sem áður var sinnt af GAMMA samkvæmt samningnum verður framvegis sinnt innan félagsins.

Nánari upplýsingar veitir Jónas Þór Þorvaldsson forstjóri (jonas@kaldalon.is).