23:29:27 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Kalender

2023-11-07 Split KALD 10:1
2021-03-31 Årsstämma 2021
2021-03-19 Bokslutskommuniké 2020

Beskrivning

LandIsland
ListaSmall Cap Iceland
SektorFastigheter
IndustriFörvaltning
Kaldalón är ett isländskt fastighetsbolag. Bolagets specialistkompetens återfinns inom fastighetsutveckling, med störst fokus mot förvärv och investeringar i bostadsfastigheter. Störst verksamhet återfinns inom den europeiska marknaden, med privata kunder som dominerande kundbas. En del av projekten utvecklas med bolagets samarbetspartners. Huvudkontoret är beläget i Reykjavik.
2021-06-24 23:09:08

Kaldalón hf. (KALD) - útgáfa nýs hlutafjár

Stjórn Kaldalóns hf., kt. 490617-1320, hefur þann 24. júní 2021, ákveðið að hækka hlutafé félagsins um kr. 1.019.230.769, úr kr. 3.641.570.537 í kr. 4.660.801.306, að nafnverði, með útgáfu 1.019.230.769 nýrra hluta. Hlutirnir eru gefnir út á genginu kr. 1.30 fyrir hvern nýútgefinn hlut, og greiðast því samtals kr. 1.325.000.000 fyrir hina nýja hluti.

Greitt er fyrir hina nýju hluti með reiðufé, og verður það nýtt m.a. til kaupa á tekjuberandi eignum í samræmi við áður yfirlýsta stefnu Kaldalóns. Hlutafjárhækkunin er liður í þeirri vegferð Kaldalóns að auka vægi tekjuberandi eigna í rekstri félagsins, og því markmiði að skrá félagið á aðallista NASDAQ Iceland á árinu 2022.

Heimild stjórnar til að hækka hlutafé félagsins er til samræmis við ákvörðun aðalfundar félagsins, haldinn þann 26. júní 2020, sem staðfest var á hluthafafundi þann 7. desember 2020, en samkvæmt heimildinni hafa hluthafar ekki forgangsrétt að nýjum hlutum, heldur er stjórn heimilt að selja þá fjárfestum.

Sjóðir í stýringu Stefnis hafa skráð sig fyrir hlutum að nafnverði kr. 769.230.769, eða sem nemur kr. 1.000.000.000 að markaðsvirði miðað við markaðsgengið 1.30.

VÍS hefur skráð sig fyrir hlutum að nafnverði kr. 250.000.000, eða sem nemur kr. 325.000.000 að markaðsvirði miðað við markaðsgengið 1.30.

Hinir nýju hluthafar skulu greiða andvirði áskrifta þeirra eigi síðar en 4. júlí næstkomandi.

Hluthafaskrá Kaldalóns verður uppfærð til samræmis.

Fyrirtækjaráðgjöf Arion Banka er ráðgjafi Kaldalóns.