05:38:58 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Kalender

2024-02-15 Bokslutskommuniké 2023
2023-11-02 Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-17 Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-11 Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-30 Årsstämma
2023-02-15 Bokslutskommuniké 2022
2022-02-24 Bokslutskommuniké 2021
2021-11-25 Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-08-26 Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-27 Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-04-21 Årsstämma
2021-02-17 Bokslutskommuniké 2020
2019-03-21 X-dag ordinarie utdelning KVIKA 0.24 ISK

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFinans
IndustriBank
Kvika Banki bedriver bankverksamhet. Störst inriktning återfinns inom investment banking där bolaget erbjuder traditionell kapitalförvaltning, mäkleri och tillhörande rådgivning. Specialistkompetens återfinns inom erbjudandet av finansiella tjänster och investering, från räntebärande papper, aktier- och fondsparande, till fastighetsinvestering. Kunderna återfinns bland privat- och företagskunder samt institutioner.
2024-08-27 11:09:51

Guðmundur Örn Þórðarson hefur verið ráðinn í nýja stöðu framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar hjá Kviku og mun hefja störf 20. september næstkomandi. Guðmundur mun leiða viðskiptatengsl Kviku samstæðunnar auk þess að samræma markaðssókn tekjusviða bankans. Þá mun hann koma að þróun nýrra afurða og þjónustu í samvinnu við önnur svið bankans. Guðmundur mun samhliða hætta í stjórn bankans og taka sæti í framkvæmdastjórn.

Guðmundur útskrifaðist með Cand. Oecon próf í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 1997. Einnig hefur hann lokið prófi í verðbréfamiðlun og eignastýringu í Bretlandi.  Guðmundur hefur setið í stjórn Kviku frá árinu 2017 og verið varaformaður stjórnar frá árinu 2018. Frá árinu 2000 til 2003 starfaði Guðmundur á þróunarsviði og í fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. og gegndi síðan stöðu framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs hjá Straumi fjárfestingarbanka hf. á árunum 2003 til 2007. Guðmundur hefur undanfarin ár starfað við eigin fjárfestingar ásamt því að sinna hinum ýmsu stjórnarstörfum.

Ármann Þorvaldsson forstjóri Kviku banka

„Það er mikill fengur fyrir okkur að fá Guðmund til liðs við stjórnendateymi Kviku. Hann hefur áratuga reynslu í fyrirtækjaráðgjöf og fjárfestingum, er mjög vel tengdur í íslensku viðskiptalífi og hefur mikla þekkingu á allri starfsemi Kviku eftir margra ára störf í stjórn bankans og dótturfyrirtækjum hans í Bretlandi. Á undanförnum misserum hefur náðst mikill árangur hjá bankanum í að styrkja grunnrekstur hans og ná fram hagræðingu í rekstri, en framundan er enn frekar aukin áhersla á tekjumyndun á öllum sviðum. Styrkur bankans til að sækja fram eykst umtalsvert þegar salan á TM gengur í gegn og ráðning Guðmundar er mikilvægur liður í því að efla viðskiptavinatengsl Kviku og auka umsvif bankans á fjármálamarkaði.“