Kurs & Likviditet
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Bank |
Í viku 36 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 8.004.000 eigin hluti að kaupverði 132.065.800 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð |
2.9.2024 | 15:05:51 | 4.000 | 16,450 | 65.800 |
2.9.2024 | 15:15:39 | 5.000.000 | 16,500 | 82.500.000 |
3.9.2024 | 13:57:06 | 3.000.000 | 16,500 | 49.500.000 |
Samtals | 8.004.000 | 132.065.800 |
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 4. júlí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. mars 2024.
Kvika átti 46.491.730 eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 54.495.730 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,154% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 848.791.107 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 1.000.000.000 að kaupvirði.
Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 4. júlí 2024 til aðalfundar Kviku á árinu 2025 nema hámarks kaupvirði verði náð fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög. þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014. sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016. sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is