03:32:00 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Kalender

2024-02-15 Bokslutskommuniké 2023
2023-11-02 Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-17 Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-11 Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-30 Årsstämma 2023
2023-02-15 Bokslutskommuniké 2022
2022-02-24 Bokslutskommuniké 2021
2021-11-25 Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-08-26 Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-27 Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-04-21 Årsstämma 2021
2021-02-17 Bokslutskommuniké 2020
2019-03-21 Ordinarie utdelning KVIKA 0.24 ISK

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFinans
IndustriBank
Kvika Banki bedriver bankverksamhet. Störst inriktning återfinns inom investment banking där bolaget erbjuder traditionell kapitalförvaltning, mäkleri och tillhörande rådgivning. Specialistkompetens återfinns inom erbjudandet av finansiella tjänster och investering, från räntebärande papper, aktier- och fondsparande, till fastighetsinvestering. Kunderna återfinns bland privat- och företagskunder samt institutioner.
2021-04-29 13:05:10

Stjórn Kviku banka hf. („Kvika“ eða „félagið“) hefur síðan á síðasta stjórnarfundi tekið fyrir 6 tilkynningar eigenda áskriftarréttinda að hlutum í félaginu, að nafnvirði samtals 5.676.667 kr., um nýtingu réttindanna.

Allar tilkynningarnar eru vegna áskriftarréttinda sem gefin voru út og seld á árunum 2017 og 2019 á grundvelli bráðabirgðaákvæða II og IV í samþykktum félagsins. Af framangreindum tilkynningum voru þrjár tilkynningar um nýtingu áskriftarréttinda sem seld voru á árinu 2019 á grundvelli bráðabirgðaákvæðis II, þ.e. að 2.850.000 nýjum hlutum, og þrjár tilkynningar um nýtingu áskriftarréttinda sem seld voru á árinu 2017 á grundvelli bráðabirgðaákvæðis IV, þ.e. 2.826.667 nýjum hlutum. Framangreint felur í sér nýtingu á áskriftarréttindum að samtals 5.676.667 nýjum hlutum. Kaupverð hinna nýju hluta nemur kr. 58.534.902 og því er reiknað meðalgengi 10,3114910.

Með vísan til samninga um útgáfu áskriftarréttindanna er stjórn skylt að hækka hlutafé til að mæta skuldbindingum samkvæmt réttindunum og gefa út hlutafé, skrá rétthafa í hlutaskrá og tryggja skráningu þeirra sem rétthafa í verðbréfamiðstöð, sbr. lög nr. 7/2020 um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignaskráningu fjármálagerninga.

Stjórn nýtti í dag heimild sína samkvæmt bráðabirgðaákvæði II og IV í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess í þeim tilgangi að mæta nýtingu framangreindra áskriftarréttinda. Hlutafé félagsins verður því hækkað um kr. 5.676.667 og mun eftir hækkun standa í kr. 4.712.394.904 að nafnvirði, með útgáfu nýrra hluta.

Heimild stjórnar til hlutafjárhækkunar á grundvelli bráðabirgðaákvæðis IV mun í kjölfar hækkunar vera 307.050.046 kr. að nafnvirði og á grundvelli bráðabirgðaákvæðis II 81.275.000 kr. að nafnvirði.

Hlutafjárhækkunin verður tilkynnt til og skráð af Fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra og nýir hlutir verða gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og óskað verður eftir töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Tilkynning þessi er í samræmi við verklag sem félagið tilkynnti um þann 19. september 2019.