Kurs & Likviditet
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Försäkring |
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. birtir ársuppgjör fyrir árið 2021 og fjórða ársfjórðung 2021 eftir lokun markaða fimmtudaginn 10. febrúar nk.
Kynningarfundurinn verður aðeins í vefstreymi
Hermann Björnsson forstjóri, Sigríður Vala Halldórsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni og Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga kynna uppgjörið á fundi sama dag kl. 16.15. Kynningunni verður streymt á slóðinni https://www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/afkomukynning-4f-2021/ . Vilji aðilar bera upp spurningar má senda þær á netfangið fjarfestar@sjova.is fyrir fundinn eða á meðan á útsendingu stendur og verður þeim svarað í lok kynningarinnar.
Uppgjörsefni verður aðgengilegt á vef Sjóvár www.sjova.is/fjarfestar frá þeim tíma er kynningin hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum.
Nánari upplýsingar veitir: Andri Már Rúnarsson, fjárfestatengill, í síma 772-5590 eða netfangið fjarfestar@sjova.is