Kurs & Likviditet
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Försäkring |
Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf. verður haldinn föstudaginn 11. mars 2022 kl. 15:00.
Engar kröfur um tiltekin mál eða tillögur bárust frá hluthöfum innan tilskilins frests sem var þann 1. mars sl. og er dagskrá aðalfundar því óbreytt frá fyrri tilkynningu félagsins 17. febrúar 2022. Fyrir aðalfundinum liggja því óbreyttar tillögur og ályktanir frá stjórn félagsins sbr. meðfylgjandi viðhengi.
Líkt og getið var um í aðalfundarboði þann 17. febrúar sl. þá verður aðalfundur Sjóvár haldinn í fundarsölum H og I á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, föstudaginn 11. mars kl. 15:00. Jafnframt er gefinn kostur á rafrænni þátttöku á fundinum, án þess að hluthafar séu viðstaddir á fundarstað, í gegnum aðalfundakerfi Lumi AGM. Rafræn þátttaka mun því jafngilda mætingu á fundinn og veita þátttöku í honum að öðru leyti.
Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á að sækja fundinn, hvort sem þeir ætla að mæta á fundarstað eða taka þátt í fundinum með rafrænum hætti, þurfa að skrá sig til að nálgast aðgangsupplýsingar á vefsvæðinu https://www.lumiconnect.com/meeting/sjova eigi síðar en kl. 15:00 þann 10. mars, eða degi fyrir fundardag, þar sem ekki er hægt að tryggja aðgang að fundinum berist skráning eftir þann tíma. Með innskráningu skal fylgja mynd af skilríkjum og umboð, ef við á. Þeir sem taka þátt í fundinum með rafrænum hætti fá aðgang að streymi af fundinum, geta kosið rafrænt og borið upp skriflegar spurningar.
Atkvæðagreiðsla á aðalfundinum mun eingöngu fara fram í gegnum aðalfundakerfi Lumi AGM hvort sem hluthafar hyggjast mæta á fundarstað eða taka þátt í fundinum með rafrænum hætti.
Hægt er að nálgast aðalfundakerfið með tvennum hætti:
- Vafri – https://www.lumiconnect.com/113866705
- Snjallforrit/app – Nálgast þarf forritið LUMI AGM í apple App Store eða Google Play Store.
Nánari leiðbeiningar um skráningu á aðalfundinn og rafræna þátttöku og atkvæðagreiðslu er hægt að finna á vefsvæði félagsins https://www.sjova.is/adalfundur2022/. Þar er jafnframt að finna önnur fundargögn og frekari upplýsingar tengdar aðalfundinum.
Nánari upplýsingar veitir Andri Már Rúnarsson í síma 772-5590 eða fjarfestar@sjova.is