Kurs & Likviditet
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Försäkring |
Sjóvá-Almennar tryggingar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 11 keypti Sjóvá 1.612.565 eigin hluti að kaupverði 55.754.236 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
14.3.2022 | 15:24:30 | 755.000 | 34,40 | 25.972.000 |
15.3.2022 | 14:22:54 | 100.000 | 34,20 | 3.420.000 |
16.3.2022 | 10:44:10 | 2.565 | 34,40 | 88.236 |
17.3.2022 | 10:34:03 | 755.000 | 34,80 | 26.274.000 |
Samtals | 1.612.565 | 55.754.236 | ||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 25. febrúar 2022.
Sjóvá átti 56.696.547 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 58.309.112 eigin hluti eða sem nemur 4,60% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 5.117.318 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,40% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 177.336.269 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 16.527.124 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 5,5% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 30. júní 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, II. kafla viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veitir:
Andri Már Rúnarsson í síma 772-5590 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is