Kurs & Likviditet
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Försäkring |
Sjóvá-Almennar tryggingar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 3 keypti Sjóvá 2.500.000 eigin hluti að kaupverði 93.750.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
18.1.2022 | 09:40:42 | 625.000 | 37,60 | 23.500.000 |
19.1.2022 | 13:11:24 | 625.000 | 37,60 | 23.500.000 |
20.1.2022 | 12:40:30 | 625.000 | 37,60 | 23.500.000 |
21.1.2022 | 09:32:26 | 625.000 | 37,20 | 23.250.000 |
Samtals | 2.500.000 | 93.750.000 | ||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 7. janúar 2022.
Sjóvá átti 42.346.689 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 44.846.689 eigin hluti eða sem nemur 3,54% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 5.025.363 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,40% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 189.569.083 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 7.714.312 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 3,75% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 30. júní 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, II. kafla viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veitir:
Andri Már Rúnarsson í síma 772-5590 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is